18 nóvember 2025

/

Heilbrigðisráðuneytið

Vitundarvakning um sýklalyf og sýklalyfjaónæmi

{image.Description}

Sóttvarnastofnun Evrópu helgar 18. nóvember vitundarvakningu um sýklalyf og í dag hefst jafnframt vitundarvika Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um sýklalyfjaónæmi. Tilgangurinn er að minna almenning, stjórnvöld, heilbrigðisstarfsfólk og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum. Hér á landi er notkun sýklalyfja og byrði af völdum ónæmra sýkla mest hjá elstu aldurshópunum. Sóttvarnalæknir helgar því árlegt málþing sitt um sýklalyfjanotkun því hjúkrunarheimilum.

Árið 2024 var notkun sýklalyfja hjá fólki svipuð og undanfarin ár en um þriðjungur landsmanna fékk að minnsta kosti eina sýklalyfjaávísun á árinu. Flestum sýklalyfjum var ávísað utan sjúkrahúsa, oftast af heimilislækni. Á Íslandi er notkun breiðvirkra sýklalyfja almennt lítil sem er jákvætt þar sem breiðvirk sýklalyf stuðla frekar að auknu sýklalyfjaónæmi. Notkun sýklalyfja er mest hjá yngstu og elstu aldurshópunum.

Nánar er fjallað um vitundarvakningu gegn sýklalyfjum og sýklalyfjaónæmi á vef embættis landlæknis. Þar kemur m.a. fram að rannsókn á hjúkrunarheimilum hérlendis sýndi að um 7% íbúa tóku eitt eða fleiri sýklalyf á þeim tíma sem rannsóknin fór fram. Yfir helmingur af öllum sýklalyfjum voru gefin í fyrirbyggjandi tilgangi, sem er hátt í samanburði við önnur ESB/EES ríki. Þar af var nær helmingur til að fyrirbyggja þvagfærasýkingar.

Þótt staðan á Íslandi sé að mörgu leyti góð hvað varðar notkun sýklalyfja og sýklalyfjaónæmi er mikið starf óunnið. Miklar vonir eru bundnar við innleiðingu nýlegrar aðgerðaáætlunar stjórnvalda. Einnig er þátttaka í erlendu samstarfi mikilvæg en sóttvarnalæknir tekur meðal annars þátt í EU-JAMRAI-2 verkefninu sem er samstarf 30 ESB/EES ríkja um aðgerðir til þess að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

Málþingið sóttvarnalæknis í dag verður haldið á Hrafnistu á Sléttuvegi, en einnig verður boðið upp á þátttöku með fjarfundi. Málþingið hefst kl. 13.00.