19 nóvember 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Breytingar á reglugerðum um erfðabreyttar lífverur í samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri reglugerð um ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur, í stað eldri reglugerðar um sama efni nr. 68/1998. Einnig eru birt á sama stað drög að breytingu á reglugerð um sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttar lífvera, nr. 728/2011.
Breytingarnar koma til vegna ábendinga Umhverfis- og orkustofnunar og ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur, sem telja tímabært að skerpa á og uppfæra ákvæði framangreindra reglugerða er snúa að erfðabreyttum lífverum. Ný reglugerð um ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur tekur meðal annars tillit til stjórnsýsluframkvæmdar í dag. Helstu breytingar sem lagðar eru til varðandi reglugerð um sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera eru að sett er inn ákvæði um upplýsingagjöf Umhverfis- og orkustofnunar til ESA, og um trúnaðarmeðferð upplýsinga.
Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 18, desember nk.