19 nóvember 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Fullt hús á heilbrigðisþingi um endurhæfingu – bein útsending
Endurhæfing – leiðir til betra lífs, er yfirskrift árlegs heilbrigðisþings heilbrigðisráðherra sem fram fer fimmtudaginn 20. nóvember á Hótel Hilton Nordica. Á sjötta hundrað manns hafa skráð sig á þingið og ekki húsrúm fyrir fleiri, en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi. Dagskráin er fjölbreytt og margir áhugaverðir fyrirlestrar um endurhæfingu ásamt pallborðsumræðum um skipulag endurhæfingar, áskoranir og framtíðarsýn. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við stefnumótun í endurhæfingu innan heilbrigðiskerfisins og er þingið liður í því starfi.
Upplýsingar um þingið, dagskrá, fyrirlesarana og erindi þeirra eru á vefsíðu þingsins https://www.stjornarradid.is/raduneyti/heilbrigdisraduneytid/heilbrigdisthing-2025/