19 nóvember 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Öll börn með! – Öflug barnamenningarráðstefna á Akranesi
Barnamenningarráðstefnan Öll börn með! fór fram á Akranesi þann 13. nóvember og var afar vel sótt en um 80 þátttakendur víðs vegar af landinu tóku þátt og var hópurinn fjölbreyttur. Listafólk, fulltrúar menningarhúsa, safna og sveitarfélaga ræddu þar um framtíð barnamenningar á Íslandi. Ráðstefnan var haldin af List fyrir alla sem er verkefni fjármagnað af menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. List fyrir alla er ætlað að velja og miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Logi Einarsson ráðherra setti ráðstefnuna sem fór kröftuglega af stað með hópavinnu sem leidd var af Vigdísi Jakobsdóttur. Þar var lagt upp með að draga fram skýr markmið og áherslur sem þátttakendur gætu nýtt sem vegvísi í starfi sínu. Jafnframt voru kynnt fjölbreytt og spennandi verkefni á sviði barnamenningar, þar á meðal barnamenningarhátíðir, Barnamenningarsjóður, List fyrir alla, Sögur, Svakalega sögur og Handbendi. Þá voru kynntar niðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar meðal skólastjórnenda og kennara í grunnskólum um verkefnið List fyrir alla þar sem fram kom meðal annars að grunnskólar vilja fá listina nær nemendum, hafa reglulegra framboð, betri samhæfingu og ná þannig fram meiri þátttöku barna en þarfnast stuðnings í formi fjármagns, skipulags og upplýsingamiðlunar.
Litagleði í lífið
Á milli erinda tóku gestir þátt í skapandi vinnu undir leiðsögn barnamenningarverkefnisins ÞYKJÓ–ELDBLÓM og hönnuðu blóm með persónulegum skilaboðum um mikilvægi barnamenningar. Ráðherra tók við Eldblómavendinum sem hlýtur verðugan stað í ráðuneytinu.
„Barnamenning ein af grunnstoðum skapandi þjóðar. Hún styrkir sjálfsmynd barna, skapar tækifæri til þátttöku og nærir sköpunarkraftinn. Á ráðstefnu sem þessari fá þátttakendur dýrmæta innsýn í störf og aðstæður þeirra sem brenna fyrir barnamenningu og sameiginlegt leiðarljós skiptir þar sköpum til að árangurinn verði sem mestur. Gott samtal leiðir af sér fleiri hugmyndir og skemmtilegri vinnu eins og sést á litadýrðinni sem mér var færð. Eldblómavöndurinn er falleg áminningu um að hlusta á börnin, ekki bara í dag heldur alla daga því þau munu lita lífið til framtíðar og það er okkar hlutverk að efla litagleðina,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.