19 nóvember 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra fundaði með António Guterres aðalritara Sameinuðu þjóðanna á COP30

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fundaði með António Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, ásamt ráðherrum Nýja-Sjálands, Ástralíu, Noregs og Japan í Belém í Brasilíu.

Á fundinum var farið yfir stöðu samningaviðræðna á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP30) og snert á helstu áskorunum alþjóðasamfélagsins í loftslagsmálum. Meðal umræðuefna var staða fjármögnunar aðlögunaraðgerða fyrir þau ríki sem standa hvað höllustum fæti gagnvart loftslagsvánni, jafnframt mikilvægi mótvægisaðgerða og að ákvarðanir á vettvangi COP byggi á traustum vísindalegum grunni.

Á fundinum áréttaði ráðherra að Ísland legði áherslu á að dregið yrði hraðar úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu og að tekið væri mark á vísindaniðurstöðum um hlýnun jarðar. Rætt var sérstaklega um loftslagsvendipunkta og áhrif þeirra: hnignun Amazon-regnskógarins, eyðileggingu kóralrifa og röskun Atlantshafshringrásarinnar (AMOC).

Einnig var rætt um mikilvægi þess að ríki uppfylli og efli landsákvörðuð framlög sín (NDC) og að alþjóðasamfélagið leggi aukna áherslu á að hverfa frá notkun jarðefnaeldsneytis í samræmi við markmið Parísarsamkomulagsins. Um leið séu aðlögunaraðgerðir nauðsynlegar, enda afleiðingar loftslagsvárinnar þegar komnar fram.

Fundarmenn voru sammála um að aukinn metnaður, skilvirkni og samstaða ríkja séu lykilforsendur fyrir því að draga úr áhættu vendipunkta og tryggja árangur í loftslagsmálum á heimsvísu.