19 nóvember 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Styrkir Bjargráð sem þjónustar aðstandendur fanga

{image.Description}
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Hjalti Jón Sverrisson, fangaprestur.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt Bjargráði 12 milljóna króna styrk. Bjargráð er þjónusta fyrir fjölskyldur og aðstandendur sem eru í þeim sporum að einhver nákominn bíður eftir afplánun, er í afplánun eða er laus úr henni.

Margs konar tilfinningar geta vaknað yfir því að ástvinur sé á leið í afplánun eða sitji í fangelsi, til að mynda sorg, skömm, sektarkennd, óöryggi, léttir, reiði og ótti um afdrif viðkomandi. Börn fanga eru líka hópur sem sinna þarf sérstaklega.

Bjargráð var sett á laggirnar fyrir þremur árum með stuðningi frá ráðuneytinu. Fjölskylduráðgjafar Bjargráðs hafa nú tekið um 1.100 viðtöl og fer fjöldi viðtala stöðugt vaxandi. Þjónustan er öllum aðgengileg og er veitt af aðilum sem eru menntaðir fjölskylduráðgjafar og hafa víðtæka reynslu af fjölskylduráðgjöf. Þjóðkirkjan útvegar húsnæði undir þjónustuna ásamt fleiri aðilum um land allt.

„Afplánun snertir ekki aðeins fanga heldur allt þeirra nánasta umhverfi. Að baki hverjum og einum fanga eru fjölskyldur sem geta staðið frammi fyrir erfiðum og oft flóknum aðstæðum. Þetta geta verið börn, makar, fyrrverandi makar, foreldrar fanga, systkini og svo framvegis. Tilfinningarnar geta verið flóknar og það er afar mikilvægt að við styðjum við bakið á þessum hópi,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Ráðherra ásamt Hjalta Jóni Sverrissyni og Jennýju Magnúsdóttur, fjölskyldufræðingi hjá Bjargráði.