20 nóvember 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Samstarf við Nýja Sjáland í tækniþróun á sviði jarðhita
Ísland og Nýja Sjáland hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf ríkjanna á sviði jarðhita. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði yfirlýsinguna fyrir Íslands hönd, á fundi sem hann átti með Simon Watts, ráðherra loftslags- og orkumála, í Belém í Brasilíu þar sem ráðherrarnir taka báðir þátt í Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP30).
Nýja Sjáland stendur framarlega á sviði jarðhita líkt og Ísland og eiga ríkin margt sameiginlegt í orkumálum og endurspeglar yfirlýsingin sameiginlegan vilja ríkjanna til að flýta þróun næstu kynslóðar jarðvarmakerfa.
Hafa ríkin sammælst um að auka samstarf um þróun jarðhitalausna og á vettvangi ofurheits jarðhita. Ofurheitur jarðhiti felur í sér að nýta varkmaorku úr dýpri jarðlögum en áður hefur verið gert. Ísland er leiðandi í þróun slíkra verkefna og nýlega var undirrituð samstarfsyfirlýsing um að hraða IDDP-3 djúpborunarverkefninu hér á landi. Á Nýja-Sjálandi er rekið verkefnið Supercritical Geothermal, sem miðar að sömu markmiðum og íslenska IDDP-djúpborunarverkefnið.
Markmið yfirlýsingarinnar er að efla samstarf ríkjanna á sviði jarðhitanýtingar og orkunýsköpunar. Í því skyni verður komið á fót sameiginlegum vinnuhópum og aukið samstarf milli fyrirtækja, vísindafólks og stofnana í báðum löndum, meðal annars með miðlun þekkingar og mennta- og vísindasamstarfi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:
„Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er í markvissri vinnu við að styrkja samkeppnishæfni Íslands á sviði jarðhitanýtingar og efla alþjóðlegt forystuhlutverk okkar á þessu sviði. Þess vegna höfum við ráðist í stærsta átak sem Ísland hefur farið í á sviði jarðhitaleitar á þessari öld. Þess vegna einföldum við regluverk vegna jarðborana og þess vegna erum við í fyrsta skipti að móta jarðhitastefnu fyrir Ísland.
Þéttara samstarf Íslands og Nýja Sjálands er liður í þessari sömu vegferð. Vinir okkar á Nýja Sjálandi eru að reka sig á sömu hindranirnar og glíma við sömu áskoranirnar og við þegar kemur að næstu kynslóð jarðhitanýtingar og djúpborun niður að kviku. Ávinningurinn af auknu samstarfi og þekkingarmiðlun getur því orðið gríðarlegur. Það er viðeigandi að við notum COP30 hér í Brasilíu sem vettvang til að formgera slíkt samstarf, enda getur jarðhitanýting leikið lykilhlutverk í orkuskiptum um allan heim.“
Jóhann Páll fundaði fyrr í haust með Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja Sjálands þar sem ráðherrarnir sammæltust um að hefja formlega undirbúning tvíhliða samstarfssamnings um jarðhitasamvinnu. Sú vinna hefur nú leitt til undirritaðrar viljayfirlýsingar.