21 nóvember 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Breytingar á lögum um sjúkraskrár samþykktar á Alþingi
Skýr ákvæði um aðgengi fólks að eigin sjúkraskrárupplýsingum og breytingar sem stuðla að þróun stafrænna lausna, betri þjónustu og bættu öryggi sjúklinga eru meginefni frumvarps Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um sjúkraskrár sem samþykkt var á Alþingi í vikunni. Markmið breytinganna er einnig að auka skilvirkni heilbrigðisþjónustu við landsmenn og draga úr skriffinnsku.
Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 lögð áhersla á mikilvægi þess að landsmenn hafi aðgang að eigin sjúkraskrárupplýsingum og er sá réttur styrktur með lagabreytingunni. Tekin eru af tvímæli um rétt sjúklinga til að fá afrit af eigin sjúkraskrá. Sé slíkri beiðni synjað með þeim rökum að það þjóni ekki hagsmunum sjúklings skal leiðbeina viðkomandi um hvernig bera megi synjunina undir embætti landlæknis. Stofnanir fá heimild til að taka gjald fyrir afritun gagna fyrir sjúklinga en einungis til að standa undir kostnaði vegna þess.
Heilbrigðisstarfsmönnum verður nú heimill aðgangur að sjúkraskrá við stofnun miðlægra lyfjakorta og breytingar á þeim. Þá felur lagabreytingin í sér ákvæði sem skýrir hlutverk eftirlitsaðila með meðferð sjúkraskráa. Skýrt er kveðið á um að ábyrgðar- og umsjónaraðilum sjúkraskráa sé skylt að tilkynna brot gegn lögum og reglugerðum um meðferð sjúkraskráa til embættis landlæknis. Ef brot teljast meiriháttar skal það kært til lögreglu og getur brot varðað sektum eða fangelsi allt að þremur árum.
Allar sjúkraskrárupplýsingar færðar í stafræn skráningarkerfi
Öllum þjónustuveitendum verður skylt að færa sjúkraskrár í stafræn sjúkraskrárkerfi. Enn eru dæmi um að heilbrigðisstarfsmenn nýti persónulegan hugbúnað við skráningu sjúkraskrárupplýsinga sem uppfylla ekki kröfur um öryggi gagna og aðgangsstýringu. Því er með lögunum tekinn af vafi um þá skyldu sem felst í rekstri stafrænna sjúkraskráa. Veittur er aðlögunarfrestur til 1. desember 2026 en frá þeim tíma þurfa allir veitendur heilbrigðisþjónustu að uppfylla þessa kröfu.
Með stafrænni skráningu aukast gæði og stöðlun skráninga sem um leið auðveldar eftirlit með þjónustunni. Að auki er það forsenda þess að unnt sé að gera tilteknar sjúkraskrárupplýsingar aðgengilegar miðlægt að allir veitendur heilbrigðisþjónustu noti stafræn sjúkraskrárkerfi.