21 nóvember 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Niðurstöður innlausnarmarkaðar fyrir greiðslumark sauðfjár
Innlausnarmarkaður ársins 2025 með greiðslumark í sauðfé var haldinn þann 17. nóvember sl. og bárust atvinnuvegaráðuneytinu 154 umsóknir um kaup og 22 umsóknir um sölu.
Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.
Innlausnarverð ársins er 5.610,- kr./ærgildi. Sama verð gildir fyrir kaup og sölu.
Alls var óskað eftir 35.657 ærgildum til kaups. Til ráðstöfunar voru 3.546 ærgildi eða 10% af kaupóskum. Úthlutað var samkvæmt forgangsreglum reglugerðar um stuðning við sauðfjárrækt nr 144/2022.
Af 154 umsækjendum alls töldust 116 til forgangshóps og 38 til almenns hóps. Allt það greiðslumark sem var til ráðstöfunar rann til forgangshóps.
Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt úthlutun. Atvinnuvegaráðuneytið mun senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.