24 nóvember 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Tólf lagabálkum breytt til að einfalda regluverk og ryðja burt hindrunum
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælir fyrir lagafrumvarpi á Alþingi í dag sem felur í sér umtalsverða einföldun regluverks og leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála. . Á meðal nýmæla í frumvarpinu er að ekki verður lengur gerð krafa um starfsleyfi vegna hverrar einustu borframkvæmdar vegna jarðhitanýtingar. Þá verða matsskilyrðismörk vegna hagnýtingar jarðhita til hitaveitu hækkuð þannig að færri framkvæmdir verði háðar umhverfismati.
Frumvarp ráðherra felur í sér breytingar á alls tólf lagabálkum með það að markmiði að ryðja burt hindrunum í regluverki, auka skilvirkni og tryggja hraðari afgreiðslutíma í stjórnsýslu umhverfis- og orkumála. Með breytingunum fær Umhverfis- og orkustofnun víðtækar heimildir til þess að sameina afgreiðslu mismunandi leyfa í eina leyfisveitingu, bæði hvað varðar leyfi á hennar eigin valdsviði og annarra stjórnvalda.
Framkvæmdir á virkjunarkostum sem settir hafa verið í orkunýtingarflokk rammaáætlunar fá forgangsmeðferð hjá stofnuninni samkvæmt frumvarpinu. Áður hefur ráðherra lagt fram frumvarp um lögbundna tímafresti og aukna festu við framkvæmd rammaáætlunar þar sem jafnframt er kveðið á um að stjórnvöld setji sér langtímastefnu um raforkuöflun með tölulegum markmiðum og að sú stefna verði lögð til grundvallar við flokkun virkjunarkosta. Saman er þessum breytingum á almennum leyfisferlum og rammaáætlunarferlinu ætlað að stytta verulega þann tíma sem tekur að koma stórvirkjunum af hugmyndastigi yfir á framkvæmdastig.
Í frumvarpinu er einnig að finna ákvæði sem mun í fyrsta skipti veita stjórnvöldum heimild til að veita rannsóknarleyfi vegna vindorku á hafi og sjávarfallavirkjana utan netlaga. Þá fær ráðherra víðtækari heimildir til að kveða á um að atvinnustarfsemi verði skráningarskyld í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi.