25 nóvember 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Jarðhiti jafnar leikinn: 600 milljónir í nýsköpun og tækniþróun

{image.Description}

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að ráðstafa 600 milljónum króna í styrki til nýsköpunar og tækniþróunar á sviði jarðhita. Fjárveitingin er liður í átakinu Jarðhiti jafnar leikinn og kemur til viðbótar þeim milljarði króna sem þegar hefur verið úthlutað vegna leitar og nýtingar jarðhita um allt land. Nú verður ekki aðeins horft til jarðhitaleitar vegna húshitunar á krefjandi svæðum heldur einnig til verðmætasköpunar, fjölnýtingar jarðhita og tækniþróunar á þessu sviði.

Með þessari viðbót er stutt enn frekar við samkeppnishæfni Íslands á sviði jarðhitanýtingar og ýtt undir nýsköpun og tækniþróun á þessu sviði.

Styrkhæfi og áherslur

Styrkir verða veittir til orkufyrirtækja og annarra fyrirtækja sem nýta jarðvarmaauðlindina. Lögð verður áhersla á verkefni sem falla undir eftirfarandi áherslur:

A. Ný tækni til raforkuframleiðslu úr jarðvarma
Verkefni á sviði djúpborunar, Enhanced Geothermal Systems (EGS), raforkuframleiðslu úr lágvarma, nýrrar bortækni o.fl.

B. Fjölnýting jarðhita
Verkefni sem auka verðmætasköpun með beinni eða óbeinni fjölnýtingu jarðhita, t.d. með nýjum framleiðsluferlum eða notkunarformum, sérstaklega þar sem loftslagsáhrif eru jákvæð og verkefni hafa ekki áður notið stuðnings úr öðrum opinberum sjóðum.

C. Nýting jarðhita til húshitunar
Nýjar aðferðir við nýtingu jarðhita, m.a. með varmadælum, aukinni nýtni eða hagkvæmni, og uppbyggingu sem dregur úr rafhitunarkostnaði og styður við fjölgun notenda. Almennar boranir eða hefðbundin uppbygging dreifikerfa teljast ekki styrkhæfar.

Við mat á umsóknum verður m.a. horft til þjóðhagslegrar hagkvæmni, byggðasjónarmiða og áhrifa á nærsvæði, auk gæða gagna og undirbúnings.

Hámarksstyrkhlutfall og styrkfjárhæð getur numið mest þriðjungi af heildarkostnaði fjárfestingar (án vsk.).

Loftslags- og orkusjóður annast úthlutun styrkjanna og er umsóknarfrestur til 20. desember 2025.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Við höfum þegar úthlutað milljarði til leitar og nýtingar jarðhita á krefjandi svæðum og verkefnin fara hratt af stað. En nú hefst næsti fasi í átakinu Jarðhiti jafnar leikinn, og þá hugsum við stærra og beislum jarðhitann ekki aðeins um jarðhita sem tæki til jöfnunar lífskjara heldur líka sem drifkraft verðmætasköpunar og atvinnuþróunar. Þetta er í takti við stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur í orkumálum og atvinnumálum. Krafturinn er til staðar í byggðum landsins og þessi 600 milljóna viðbót gerir okkur kleift að virkja hann betur og hraðar. Um leið göngum við rösklega til verka við einföldun regluverks: hækkum mörkin vegna hagnýtingar jarðhita þannig að færri framkvæmdir séu háðar umhverfismati og hættum að gera kröfu um starfsleyfi vegna hverrar borframkvæmdar. Ég hef þegar flutt frumvarp um slíkar breytingar á Alþingi.“