25 nóvember 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Rakel Elíasdóttir skipuð framkvæmdastjóri Menntasjóðs námsmanna
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, skipaði í gær Rakel Elíasdóttur í embætti framkvæmdastjóra Menntasjóðs námsmanna til fimm ára frá og með 1. janúar næstkomandi.
Embætti framkvæmdastjóra Menntasjóðs námsmanna var auglýst laust til umsóknar þann 28. júní síðastliðinn. Alls bárust 17 umsóknir um starfið.
Rakel Elíasdóttir er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur öðlast málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Rakel býr yfir fjölbreyttri reynslu sem nýtist í embættinu og starfaði nú síðast sem deildarstjóri yfir rekstri Bílastæðasjóðs hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Um nokkurra ára skeið var Rakel deildarstjóri innheimtudeildar þáverandi Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þar á undan vann Rakel m.a. sem fulltrúi, lögmaður og lögfræðilegur ráðgjafi á lögmannsstofum, Lyfjastofnun og hjá Gjaldheimtunni.