25 nóvember 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Styrkjum úthlutað til nýrra verkefna á sviði fjarheilbrigðisþjónustu
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið úthlutun 50 milljóna króna til sex verkefna sem styðja við markmið byggðaáætlunar stjórnvalda um eflingu fjarheilbrigðisþjónustu. Hæstu styrkirnir renna til verkefnis um fjarvöktun bráðveikra nýbura á landsbyggðinni og til innleiðingar á langtímaeftirliti með langveikum sjúklingum með nýtingu gervigreindar. Heilbrigðisráðuneytið fjármagnar 30 milljónir króna af styrkfjárhæðinni en 20 milljónir króna koma af byggðaáætlun.
Í byggðaáætlun er skilgreind aðgerð um fjarheilbrigðisþjónustu (A.5.) með það að markmiði að auka og bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu með nýsköpun á þessu sviði og jafna aðgengi almennings að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu. Verkefnastyrkirnir eru veittir með þetta markmið að leiðarljósi.
„Það er stórkostlegt að fylgjast með innleiðingu nýrra lausna í fjarheilbrigðisþjónustu og sjá hve mikil áhrif þær geta haft til að bæta þjónustu við sjúklinga, auka öryggi þeirra, jafna aðgengi að þjónustu óháð búsetu og auka hagræði og skilvirkni í heilbrigðiskerfinu. Það er ánægjulegt að geta styrkt verkefni sem nýtast sérstaklega íbúum landsbyggðar og með hverju árinu fjölgar möguleikum okkar og getu til að taka í notkun nýjar tæknilausnir sem hafa burði til þess að styðja við heilbrigðisþjónustu í nærumhverfi“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir umsóknum frá heilbrigðisstofnunum um styrki til verkefna á sviði fjarheilbrigðisþjónustu og bárust 12 umsóknir. Valnefnd skipuð sérfræðingum ráðuneytisins vann tillögur um úthlutun til ráðherra sem ákvað að veita styrki til eftirtalinna verkefna:
Fjarvöktun bráðveikra nýbura á landsbyggðinni: Styrkir eru veittir til tækjakaupa á öllum starfsstöðvum á landsbyggðinni þar sem veitt er fæðingarþjónusta, auk Landspítala, samtals 30 m.kr. Með tækjabúnaðinum verður unnt að miðla rauntímaeftirliti með nýburum sem fæðast utan höfuðborgarsvæðis og þurfa á eftirliti sérfræðinga að halda og einnig meðan á sjúkraflutningi stendur.
Langtímaeftirlit með langveikum sjúklingum: Landspítali fær 9 milljónir króna til verkefnis um hagnýtingu gervigreindar til að sjálfvirknivæða langtímaeftirlit með langveikum sjúklingum. Þetta er hluti af stóru verkefni á Landspítala sem miðar að því að fækka bráðum innlögnum og endurinnlögnum á Landspítala með virku langtímaeftirliti sjúklinga með tiltekna langvinna sjúkdóma.*
Fjarvöktun lungnasjúklinga: Sjúkrahúsið á Akureyri fær 5,5 m.kr. styrk til að koma upp búnaði til fjarvöktunar fyrir sjúklinga með langvinna lungnasjúkdóma. Vonir standa til að með verkefninu takist að efla einstaklinginn sem þátttakanda í eigin meðferð og veita meiri samfellu í þjónustunni. Um 12 mánaða tilraunaverkefni er að ræða.
Fjar-augnskimun einstaklinga með sykursýki: Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 2,5 m.kr. vegna kaupa á búnaði (RetinaRisk) sem gerir kleift að sinna í heimabyggð reglubundinni augnskimun hjá einstaklingum með sykursýki, en ella þyrftu þeir að sækja þjónustuna til Reykjavíkur. Sama lausn hefur þegar verið tekin í notkun við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með góðum árangri.
Fjarvöktun nýrnasjúklinga: Göngudeild nýrnalækninga á Landspítala fær 1,8 m.kr. styrk vegna vinnu tengdu fjarvöktunarverkefni þar sem áhersla er lögð á að virkja nýrnasjúklinga til þátttöku í eigin meðferð með stuðningi í gegnum snjallsíma.
Fjartúlkun í heilbrigðisþjónustu: Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fær 1,2 milljónir króna til kaupa á búnaði sem gerir kleift að sinna fjartúlkun í heilbrigðisþjónustu með betri og öruggari hætti en símatúlkun, en stór hluti íbúa heilbrigðisumdæmisins er með erlent ríkisfang og túlkþjónustu er mikið notuð á stofnuninni.
*Uppfært 27.11.´25