26 nóvember 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Sérfræðingur í atvinnuvegaráðuneytið

{image.Description}
DL

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu landgæða og dýraheilsu. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á frumkvæði og vönduð vinnubrögð.

Á skrifstofu landgæða og dýraheilsu er unnið að málefnum sem varða landbúnað, fæðuöryggi, matvæli, dýravelferð og jarðamál.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á málefnasviði skrifstofunnar, einkum á sviði landbúnaðar, þar á meðal umsýslu verkefna tengdum stuðningsgreiðslum til framleiðenda landbúnaðarafurða og samskipti við framleiðendur, fyrirtæki og hagsmunaaðila vegna framkvæmdar búvörusamninga.

Hæfniskröfur

  • Hagnýt menntun og þekking sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
  • Þekking á starfsumhverfi landbúnaðar er kostur
  • Þekking á bókhaldi er kostur
  • Góð tölvufærni og reynsla af Microsoft Office 365 kerfum
  • Góð færni á íslensku í ræðu og riti
  • Skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Sótt er rafrænt um starfið í gegnum Starfatorg.is.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Athygli er vakin á að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08. desember 2025

Nánari upplýsingar veita
Ása Þórhildur Þórðardóttir - [email protected] -
Bryndís Guðrún Knútsdóttir - [email protected] -

Sækja um starf.