26 nóvember 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samráðsnefnd hefur rannsókn í kjölfar kæru PCC vegna innflutnings kísilmálms frá Kína

{image.Description}

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað samráðsnefnd sem rannsakar kæru PCC BakkaSilicon hf. um innflutning kísilmálms frá Kína. Að lokinni frumathugun á kæru PCC, sem barst í júní, telur nefndin nægar sannanir fyrirliggjandi til að taka kæru félagsins til efnislegrar úrlausnar.

Með kærunni er farið fram á að undirboðs- og jöfnunartollar verði lagðir á innfluttan kísilmálm frá Kína sem PCC telur að fluttur sé til Íslands og seldur á undirboðskjörum ásamt því sem kísilmálmur, sem framleiddur sé í Kína njóti talsverðra styrkja. Telur PCC innflutninginn hafa valdið fyrirtækinu tjóni þar sem framlegð og markaðshlutdeild þess hafi dregist verulega saman undanfarin ár vegna aukins innflutnings frá Kína.

Rannsóknartímabilið er frá 1. janúar 2024 og fram til 30. júní 2025.  Samráðsnefndin mun rannsaka innflutning til Íslands á kísilmálmi á framangreindu tímabili til að ákvarða hvort um undirboð og ríkisstyrki sé að ræða. Við mat á tjóni verða hafðar til hliðsjónar markaðsaðstæður á Íslandi frá 1. janúar 2022.

Nefndin hefur alla jafna ár til þess að ljúka rannsókninni, annað hvort með frávísun eða endanlegri ákvörðun. Komist samráðsnefndin að þeirri niðurstöðu að um undirboð eða styrki sé að ræða á því tímabili sem er til rannsóknar, sem valdið hafi tjóni eða skapað hættu á tjóni, gerir nefndin tillögu til fjármála- og efnahagsráðherra um álagningu undirboðs- eða jöfnunartolla, sem svo tekur ákvörðun um tollana.

Tilkynning um upphaf rannsóknarinnar hefur verið birt í Lögbirtingablaðinu.

Nánari upplýsingar um málið