27 nóvember 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Málþing í Hörpu - Hver er staða fæðuöryggis á Íslandi?

{image.Description}
Málþing um stöðu fæðuöryggis er haldið í dag frá kl. 14.00-16.00.
  • Kristján Kristjánsson fjölmiðlamaður er stjórnandi málþingsins. Þar verða kynntar tvær nýjar skýrslur um fæðuöryggi sem hafa verið unnar fyrir atvinnuvegaráðuneytið:

  • Skýrsla Landbúnaðarháskóla Íslands eftir Torfa Jóhannesson sem fjallar um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu.

  • Skýrsla Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands segir frá tillögum að neyðarbirgðum matvæla á Íslandi. Höfundar eru Sara Björg Guðjónsdóttir, María Guðjónsdóttir, Ólöf Guðný Geirsdóttir og Ólafur Ögmundarson.

  • Einnig verður kynnt nýtt mælaborð um stöðu og horfur fæðuöryggis á Íslandi sem er unnið af Torfa Jóhannessyni og og Ullu Agerskov hjá Nordic Insights.
    Á þinginu verða pallborðsumræður þar sem verður farið yfir stöðu fæðuöryggis á Íslandi. Þátttakendur koma úr atvinnulífinu, háskólasamfélaginu og stjórnkerfinu.

    Dagskrá

14.00 - Setning málþings – Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra
14.15 - Torfi Jóhannesson kynnir mælaborð um stöðu og horfur fæðuöryggis á Íslandi ásamt skýrslu um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu.

14.40 - Pallborð - Hver er staða fæðuöryggis á Íslandi?

  • Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins

  • Guðrún Hulda Pálsdóttir fyrrum ritstjóri Bændablaðsins og meistaranemi

  • Torfi Jóhannesson, ráðgjafi hjá Nordic Insights og höfundur skýrslu um um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu

15.00 - Kaffihlé

15.10 - Ólafur Ögmundarson, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ kynnir skýrslu um tillögur að neyðarbirgðum matvæla á Íslandi

15.30 – Pallborð - Er nauðsynleg seigla samfélagsins til staðar?

  • Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ

  • Hinrika Sandra Ingimundardóttir, verkefnisstjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins

  • Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnisstjóri næringar hjá embætti landlæknis

  • Ólafur Ögmundarson , dósent við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ
    15.55 – Lokaorð - Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra

    16.00 - Þinglok

Hér má sjá málþingið í streymi