27 nóvember 2025
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Samið við Garðabæ um þróun á Vífilsstaðareit
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði í dag fyrir hönd ríkisins samkomulag við Garðabæ um sameiginlega þróun Vífilsstaðareits.
Á grundvelli samkomulagsins verður unnið sameiginlega að heildarþróun svæðisins. Sérstök áhersla verður lögð á íbúðabyggð, heilbrigðistengda starfsemi og skólaþjónustu. Gert er ráð fyrir að nýtt deiliskipulag fyrir svæðið allt verði tilbúið í lok árs 2027 eða byrjun árs 2028.
Byrjað verður á endurskipulagningu lóða við Spítalaveg 1–3 fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi. Deiliskipulag fyrir þennan hluta svæðisins verður unnið fyrir vorið 2026 og í kjölfarið hefur ríkið opið söluferli á fasteignum í samstarfi við Garðabæ. Markmið með sölu eignanna er að koma þeim í not á ný fyrir þjónustutengda starfsemi sem er til þess fallin að auka aðdráttarafl svæðisins og stuðla að mannlífi og umsvifum.
Tryggt verður að óbreytt hjúkrunarstarfsemi verði rekin á staðnum að minnsta kosti til ársloka 2030, en framtíðarnýting hússins verður skoðuð í tengslum við heildarskipulag svæðisins.
Almar Guðmundsson, Daði Már Kristófersson og Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, við Vífilsstaði að undirritun lokinni.
Ráðuneytið mun fela Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum (FSRE) að hefja niðurrif ónýtra húsa á svæðinu í tengslum við nánari þróun svæðisins. Þá verða endurbætur á ytra byrði Yfirlæknisbústaðarins kláraðar og tryggt að húsið fái verðugan sess á svæðinu.
Aðilar eru sammála um að hefja viðræður um möguleg kaup Garðabæjar á tveimur fasteignum á svæðinu að Spítalavegi 2 og 15 sem hýst hefur skólastarfsemi.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra:
„Með þessu samkomulagi er stigið mikilvægt skref í átt að heildstæðri uppbyggingu á Vífilsstöðum. Svæðið á sér langa sögu og þar eru miklir möguleikar á uppbyggingu og með þessu samkomulagi tryggjum við samvinnu ríkisins og Garðabæjar með góða nýtingu landsins að leiðarljósi.“