27 nóvember 2025
/
Innviðaráðuneytið
Tvítenging þéttbýlis – áforma- og áhugakönnun
Innviðaráðuneytið vill kortleggja áform eða áhuga fjarskiptafyrirtækja eða annarra aðila um að tvítengja þéttbýli á landinu sem hefur aðeins eina virka stofntengingu..
Innviðaráðuneytið óskar eftir upplýsingum um:
A. Eigin áform fjarskiptafyrirtækja og annarra aðila um lagningu á ljósleiðarastofnstreng fyrir árslok 2028 (án fjárstuðnings frá opinberum aðilum) sem getur nýst sem hringtenging og þar með tvítenging, það er bæði aðalleið og varaleið fjarskiptaþjónustu til neðangreinds þéttbýlis og nærliggjandi landsvæða eftir atvikum.
B. Áhuga fjarskiptafyrirtækja og annarra aðila á lagningu á ljósleiðarastofnstreng (með fjárstuðningi frá opinberum aðilum með þeim skilmálum sem slíkum stuðningi fylgir) sem getur nýst sem hringtenging og þar með tvítenging, það er bæði aðalleið og varaleið fjarskiptaþjónustu til neðangreinds þéttbýlis og nærliggjandi landsvæða eftir atvikum.
Könnunin nær til eftirfarandi þéttbýlis: Rif, Hellissandur, Patreksfjörður, Suðureyri, Hnífsdalur, Bolungarvík, Grenivík, Hvammstangi, Kópasker, Raufarhöfn og Borgarfjörður eystri.
Mikilvægar tímasetningar:
- 27. nóv.: Áforma- og áhugakönnun innviðaráðuneytisins birt.
- 2. des.: Frestur til senda skriflegar fyrirspurnir á netfangið [email protected] rennur út.
- 3. des.: Fyrirspurnir og svör við þeim birt á vef innviðaráðuneytisins.
- 5. des.: Frestur til að senda inn upplýsingar á netfangið [email protected] um áform á grundvelli A eða áhuga á grundvelli B rennur út kl. 12:00.
Innviðaráðuneytið mun líta svo á að aðilar sem skila ekki inn upplýsingum í þessari könnun hafi hvorki áform um viðkomandi verkefni á markaðslegum forsendum né áhuga á að taka þátt í slíkum verkefnum með opinberum fjárstuðningi.
Óskað er eftir að svarendur tilgreini og rökstyðji, ef þeir telja einhvern hluta svara sinna vera trúnaðarmál.
Svör við fyrirspurnum
Fyrirspurn 1:
Í leið B er komið inn á fjárstuðning frá opinberum aðilum með þeim skilmálum sem slíkum stuðningi fylgir. Óskað er eftir upplýsingum um umrædda skilmála?
Svar: Þegar áforma- og áhugakönnun er lokið mun innviðaráðuneyti vinna úr niðurstöðum og meta þörf og möguleika á opinberum stuðningi. Að því loknu verður ákveðið hvort farið verður í slíkt verkefni, hvernig og þá með hvaða skilmálum. Bent er á að eftir atvikum geta tilteknar reglur um aðgang að netum og framkvæmdum átt við þegar verkefni njóta ríkisstuðnings, t.d. 38. gr. a. í lögum um fjarskipti nr. 70/2022 og 8. gr. laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta nr. 125/2019.
Yfirlýsing um áhuga á þátttöku í hugsanlegum verkefnum skv. leið B er ekki bindandi og geta viðkomandi aðilar tekið endanlega ákvörðun varðandi þátttöku, þegar skilmálar verkefnisins liggja fyrir.
Fyrirspurn 2:
Á ekki að horfa til þess að tvítengja Bakkafjörð í Langanesbyggð í þessu verkefni?
Svar: Ástæða þess að Bakkafjörður og þéttbýli í sambærilegri stöðu voru ekki nefnd í þessari könnun er sú að það verkefni að ná fram tvítengingu, samkvæmt gögnum sem ráðuneytið styðst við, virðist frekar einfalt og hagkvæmt í samanburði við verkefni sem eru á listanum. Ráðuneytið telur æskilegt að markaðsaðilar klári slík verkefni, án aðkomu hins opinbera. Ráðuneytið mun fylgjast með þeirri framvindu.
Fyrirspurn 3:
Er gert ráð fyrir að aðilar komi með hugmyndir að lagnaleiðum í verkefninu á þessum tímapunkti, auk kostnaðar- og tímaáætlun?
Svar: Nei, það er ekki gert ráð fyrir því á þessum tímapunkti. Upplýsingar af þessu tagi geta hins vegar verið gagnlegar fyrir mótun verkefnisins.
Tilkynningin var uppfært 3. desember með svörum við fyrirspurnum.