28 nóvember 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Langtímasamningur við Lýðskólann á Flateyri

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ákveðið að gera langtímasamning við Lýðskólann á Flateyri. Skólasókn hefur verið góð og námið þar gefið góða raun. „Í Lýðskólanum á Flateyri fer fram mikilvægt starf til að valdefla nemendur og auka trú þeirra á eigin getu,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, sem heimsótti skólann við skólasetningu í haust ásamt Höllu Tómasdóttur forseta Íslands. Skólinn eykur fjölbreytni í menntakerfinu og námsframboð með áherslu á verklegt og upplifunarnám. Samningurinn er gerður til þriggja ára.

Lög um lýðskóla voru sett á Alþingi árið 2019. Markmið laganna er að stuðla að starfrækslu lýðskóla á Íslandi. Með lýðskólum er átt við skóla sem hafa það að markmiði að veita almenna menntun og uppfræðslu og undirbúa nemendur fyrir þátttöku í lýðræðissamfélagi. Lögin festu í sessi faglega umgjörð um starfsemi slíkra skóla hér á landi en fram að því hafði engin löggjöf gilt um þá.

Lýðskólar eru fyrir nemendur 18 ára og eldri. Hér er að finna nánari upplýsingar um Lýðskólann á Flateyri og kennsluhætti.