02 desember 2025

/

Innviðaráðuneytið

Framlög vegna NPA-þjónustu nema rúmum 1,6 milljarði árið 2025

{image.Description}
Hari

Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) á árinu 2025, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 192/2023.

Alls voru gerðir 127 NPA samningar á árinu 2025 og nemur heildarfjárhæð þeirra 6.429,4 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir 25% af þeim kostnaði og því nema framlög sjóðsins vegna NPA samtals 1.607,4 m.kr. á árinu 2025. Framlögin koma til greiðslu á næstu dögum.