02 desember 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun vinnustaðanámssjóðs 2025

{image.Description}

Úthlutað hefur verið 386.000.000 kr. úr vinnustaðanámssjóði til 176 umsækjenda. Á síðasta ári var framlag aukið um 150 m.kr. til eflingar vinnustaðanáms nemenda í starfsnámi.

Sótt var um fyrir tímabilið 1. nóvember 2024 til 31. október 2025. Alls sóttu tvö hundruð um.

Rannís annast umsýslu sjóðsins fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins. Nánari upplýsingar um úthlutun og styrkþega er að finna á vef Rannís.