04 desember 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Drög að nýrri reglugerð um seyru í samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri reglugerð um meðhöndlun seyru, í stað núgildandi reglugerðar um sama efni nr. 799/1999. Endurskoðun reglugerðarinnar er meðal verkefna í aðgerðaáætlun vatnaáætlunar Íslands 2022-2027.
Meðal breytinga sem settar eru fram í reglugerðardrögunum er að skýrari rammi er settur um notkun svartvatns, nýjum skilgreiningum er bætt við reglugerðina og þær eldri endurskoðaðar. Þá eru sett örverumörk við hreinsun seyru og ekki er lengur gert ráð fyrir að seyra sé notuð í þéttbýli. Breytingarnar koma til vegna ábendinga Umhverfis- og orkustofnunar, sem leitaði m.a. ráðgjafar hjá UMÍS ehf. (Environice). Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 16. janúar nk.
Ný reglugerð um meðhöndlun seyru