04 desember 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Haustúthlutun Tækniþróunarsjóðs 2025 og næsti umsóknarfrestur
Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 72 verkefna sem sóttu um í sjóðinn á haustmisseri að ganga til samninga um nýja styrki. Rannís er umsýsluaðill sjóðsins fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Í boði voru styrktarflokkarnir Sproti, Vöxtur og Markaður. Alls bárust 376 umsóknir og er árangurshlutfall styrktra verkefna sem hlutfall af innsendum umsóknum 14%. Haft verður samband við verkefnisstjóra þessara verkefna og þeir boðaðir til samningafundar.
Í þessari úthlutun er styrkveiting til nýrra verkefna 1.333 milljónir króna í heild, þar af 730 milljónir króna á fyrra ári verkefna.
Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja við rannsóknir og þróunarstarf sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi en hann er opinn fyrir nýsköpunarverkefnum úr öllum atvinnugreinum. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem býður upp á fjölmarga styrktarflokka fyrir verkefni á mismunandi stigi þróunar og heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Næsti umsóknarfrestur verður 15. febrúar, 2026.
Á seinni árshelmingi 2025 bárust 98 umsóknir í styrktarflokk Fræ/Þróunarfræ og var árangurshlutfall styrktra verkefna sem hlutfall af innsendum umsóknum 21%. Alltaf er opið fyrir umsóknir í Fræ/Þróunarfræ og tilkynnt verður síðar hvenær umsóknir verða næst teknar saman og sendar í mat hjá fagráði.
Samantektarskýrsla Tækniþróunarsjóðs yfir haustúthlutun árið 2025 verður aðgengileg á síðu Rannís undir útgáfa og kynning.
Eftirfarandi verkefnum er boðið til samninga við sjóðinn að þessu sinni*:
|
Sjóður |
Umsækjandi |
Titill |
|
Sproti |
Alga ehf. |
SeaBid - framtíðin í sölu sjávarafurða |
|
Sproti |
Arcova ehf. |
Heilsueflandi Heilaörvun |
|
Sproti |
BLUEYES EHF |
Blóðþurrð í augum |
|
Sproti |
Bancony ehf. |
Gervigreindarvörur fyrir stafræna bankaþjónustu |
|
Sproti |
CROW OUTDOORS EHF. |
CROW OUTDOORS - Einfaldari, hagkvæmari og grænni útivist með flatpökkun |
|
Sproti |
EcoAnodes |
Umhverfisvæn rafskaut fyrir kísil- og áliðnað |
|
Sproti |
GenePrint |
GenePrint: Þróun snjallsímaforrits fyrir greiningu sjaldgæfra erfðasjúkdóma |
|
Sproti |
K01 ehf. |
Ferlahermir K01 |
|
Sproti |
Mass Games |
Space Hauler |
|
Sproti |
Norðurdalur ehf. |
GAGNVARMI: Vatnskæling gagnavera með upphitun eldisvökva |
|
Sproti |
Ogma |
Leo: Gervigreindardrifið Námsforrit Fyrir Börn Með Málþroskaröskun |
|
Sproti |
OptiDesign |
OptiDesign |
|
Sproti |
Pretty Potato Games |
Wake World |
|
Sproti |
Revol ehf. |
Kennitalan - Einfaldar kaup, sölu og stofnun fyrirtækja |
|
Sproti |
Robotix ehf. |
Sjálfvirk viðgerðalína fyrir skautgaffla |
|
Sproti |
SEA THRU ehf. |
Sea Thru - Rekjanleiki á virðiskeðju íslenskra sjávarafurð |
|
Sproti |
Signal heibrigðislausnir ehf. |
Frumsmíð stafræns lyfjabakka |
|
Sproti |
Sköpunargleði ehf. |
Innovation Train – Greiningar- og nýsköpunarhugbúnaður |
|
Sproti |
Streymi ehf. |
Streymi—Hagkvæmari og hraðvirkari straumflæðigreiningar með gervigreind |
|
Sproti |
Sæcare ehf. |
Sæcare |
|
Sproti |
Tech-Center ehf. |
Þróun nýrrar ræktunartækni fyrir örþörunga: “Bio-Qb” |
|
Sproti |
Tekna |
Stafræn hleðslustýring |
|
Sproti |
Terramar |
Hagkvæm afloftun fyrir landeldi |
|
Sproti |
The Orchid slf. |
Farandleikarinn |
|
Sproti |
VarmaMAX |
VarmaMAX |
|
Sproti |
Vit - Heilbrigðismáltækni ehf. |
Vit – Heilbrigðismáltækni |
|
Vöxtur |
1984 ehf. |
1984 Skýjaþjónusta |
|
Vöxtur |
3Z ehf. |
Kalsíumgangaloki sem meðferð við ADHD |
|
Vöxtur |
Alda Solutions ehf. |
Alda Inclusive AI: Þróun inngildandi gervigreindar |
|
Vöxtur |
ArcanaBio ehf. |
ArcanaLight: Ný tækni til að greina lífmerki í aðgengilegri lífsýnum með hjálp UV-litrófsgreiningar og gervigreindar |
|
Vöxtur |
DTE ehf. |
Efnagreiningarbúnaður fyrir fljótandi ál í ofnum |
|
Vöxtur |
Genki Instruments ehf. |
LAKI, nýstárlegur hljóðgervill og þróunarumhverfi |
|
Vöxtur |
Hananja ehf |
Neyðarlyf við malaríu í börnum |
|
Vöxtur |
Hefring ehf. |
IMAS EcoSpeed orkustjórnunarkerfið: skilvirkari eldsneytisnotkun fyrir strandhafsflota |
|
Vöxtur |
Marbot ehf. |
Sjálfflot fyrir sökkvanlegar skelræktarlínur |
|
Vöxtur |
Mekkino ehf. |
Snjall hnéþjálfi |
|
Vöxtur |
Njörður Holding ehf. |
Skölun á framleiðsluferli fyrir magnesíum útfellingu frá sjávarvatni |
|
Vöxtur |
Resea Energy ehf. |
Íslenskt Sjávargull |
|
Vöxtur |
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. |
Fjólublá |
|
Vöxtur |
Videntifier Technologies ehf. |
Öflugur vektor-gagnagrunnur fyrir gervigreind |
|
Vöxtur |
Víkonnekt ehf. |
Treyst.ai |
|
Markaðsþróun |
Careflux ehf. |
Merkúr: Markaðsþróun í Danmörku |
|
Markaðsþróun |
Everen ehf. |
Erlend markaðssetning Everen |
|
Markaðsþróun |
Flow ehf. |
Flow - Hugleiðsla nútímans í Norður Ameriku |
|
Markaðsþróun |
Fléttan Earth Observation ehf. |
Fléttan kannar Kanada |
|
Markaðsþróun |
Keeps ehf. |
Keeps CMS - Markaðsþróun á Norðurlöndunum |
|
Markaðsþróun |
Showdeck ehf. |
Showdeck - markaðsinnviðir |
|
Markaðssókn |
Evolytes ehf. |
Markaðssókn Evolytes í Brasilíu og Chile |
|
Markaðssókn |
HEIMA Software ehf. |
Markaðssókn Heima í Hollandi |
|
Markaðssókn |
LOVE Synthesizers ehf. |
First LOVE Composer Synthesizer markaðssókn |
|
Markaðssókn |
Sowilo ehf. |
Markaðssetning Catecut í Singapore |
Fræ
|
Verkefnisstjóri |
Heiti verkefnis |
|
Ágúst Bjarki Ágústsson |
Rannsókn á notkun gervigreindar til þess að leysa akstursleiðaverkefni og bæta umferðarflæði í borgum. |
|
Ástráður Sigurðsson |
Þróun á XOS fæðubótarefni úr íslenskri söl |
|
Friðþjófur Þorsteinsson |
Encore |
|
Gissur Máni Ísleifsson |
Nákvæm Frammistöðu Greind |
|
Helgi Már Þórðarson |
Fasteignafélagið – Stafræn meðfjárfestingarlausn fyrir húsnæðismarkaðinn |
|
Hermann Ómarsson |
Sjálfbært tannkrem úr íslenskri náttúru og hliðarstraumum |
|
Hilmar Þór Pétursson |
Rauntíma Örplast-Greinir |
|
Hlini Melsteð Jóngeirsson |
Fullvalda skýjaþjónusta fyrir íslenska markaðinn |
|
Jessica Marie Hooper |
EBONRADE, tölvuleikir sem hugbúnaðar pallur |
|
Jónas Ingi Ragnarsson |
Modulina - Einingar fyrir landbúnaðardróna (Hagkvæmniathugun) |
|
Júlia Cristie Kessler |
Anahí heilunarkrem |
|
Kristján Óttar Rögnvaldsson |
Hagkvæmni flugáætlana |
|
Mirabela-Cristina Harja |
Emotico Planet App |
|
Samuel Thornton Rees |
Róbotík Reykjavíkur |
|
Sigurður Halldór Árnason |
66° North Hemp: Hampyrki, -prótein, -olía og -mjólkurvörur við 66° norður |
|
Sigurður Teitur Tannason |
SNAM.IS |
|
Tatiana Shirokova |
Dynamo: Dýnamísk tilboðsvél fyrir flugfélög |
|
Thelma Dögg Grétarsdóttir |
Calarmis |
|
Vilhelm Yngvi Kristinsson |
Gangvirkur umferðarhermir í þrívídd |
|
Yuang Yang |
Balanced Basket – snjallari matvöruáætlanagerð fyrir dýrtíðarlönd |
|
Örvar Hafsteinn Kárason |
Hugbúnaður sem upprunavottar forritunarverkefnislausnir nemanda |
*Listinn er birtur með fyrirvara um villur