05 desember 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Náið samstarf Íslands og Þýskalands
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með Dr. Johan Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, í Berlín í dag. Á fundinum ræddu ráðherrarnir stöðu alþjóða- og öryggismála, öryggi á Norður Atlantshafi, málefni norðurslóða, einarðan stuðning ríkjanna við Úkraínu og stöðu yfirstandandi friðarumleitana.
Í umræðum um Evrópumál ítrekaði utanríkisráðherra óánægju íslenskra stjórnvalda með nýlega ákvörðun Evrópusambandsins um að beita Ísland og hin EFTA-ríkin innan Evrópska efnahagssvæðisins verndarráðstöfunum vegna innflutnings á járnblendi. Mikilvægt væri að ákvörðunin hefði ekki neikvæð áhrif á EES samstarfið til framtíðar.
Þá var tvíhliða samstarf Íslands og Þýskalands einnig til umræðu og hvernig efla megi hið farsæla pólitíska-, viðskipta- og menningarsamstarf ríkjanna enn frekar.
„Það ríkir einstakt vinasamband milli þjóða okkar og Þýskaland er jafnframt eitt af mikilvægustu samstarfsríkjum Íslands. Ekki einvörðungu í Evrópusamvinnunni heldur sömuleiðis á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, en við höfum aukið tvíhliða samstarf okkar í varnar- og öryggismálum þar sem Þýskaland vinnur nú ötullega að því að auka getu sína, m.a. á Norður Atlantshafi, og skiptir okkur máli,“ segir Þorgerður Katrín. „Þá er viðskipta- og menningarsamstarfið við Þýskaland okkur afar dýrmætt og hefur reynst okkur gjöfult, en við vorum einnig sammála um að það séu enn fjölmörg tækifæri til að efla samstarf þjóða okkar enn frekar og það hyggjumst við gera.“