05 desember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Tvíhliða pólitískt samráð Íslands og Frakklands

{image.Description}
Sendinefndir Íslands og Frakklands í París.

Ísland og Frakkland héldu í gær sinn fjórða tvíhliða samráðsfund, að þessu sinni í París. Fulltrúar ríkjanna fóru yfir samstarf ríkjanna innan EES, öryggis- og alþjóðamál og tvíhliða samskipti.

Fjallað var um mikilvægi EES-samningsins og afstaða Íslands til verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna innflutnings á járnblendi áréttuð. Þróun innrásarstríðs Rússa í Úkraínu og horfur í friðarviðræðum voru einnig ofarlega á baugi sem og áskoranir tengdar fjölþáttaógnum og svonefndum „skuggaflota“ Rússlands.

Einnig var rætt um víðtæk samskipti Íslands og Frakklands sem vilji er til að efla enn frekar bæði á evrópskum vettvangi og tvíhliða.

 Ragnar G. Kristjánsson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu, og Anna Hjartardóttir, skrifstofustjóri alþjóðapólitískra málefna, leiddu samráðið fyrir hönd Íslands. Að fundinum loknum áttu þau einnig viðræður við fulltrúa franska utanríkisráðuneytisins um horfur í alþjóðamálum og stöðuna í Mið-Austurlöndum. Þá áttu þau fundi með fulltrúum OECD um um alþjóðaviðskipti, efnahagsöryggi og horfur í efnahagsmálum á heimsvísu.