09 desember 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tímabundið veikindaleyfi ráðherra

{image.Description}

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, fer í tímabundið veikindaleyfi frá og með deginum í dag.

Ráðherra hefur undanfarið farið í læknisrannsóknir á Landspítalanum og þarf að gangast undir hjartaaðgerð snemma á næsta ári.

Gert er ráð fyrir að aðgerðin tryggi ráðherra fullan bata til lengri tíma og að hann snúi aftur til starfa í kjölfarið.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mun tímabundið gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra.