10 desember 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

28 verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála

{image.Description}
Styrkþegar ásamt Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

28 verkefni hafa hlotið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2025. Óskað var eftir umsóknum um verkefni sem stuðla að:

  • Í fyrsta lagi: Virkri notkun tungumáls í gegnum félagslega viðburði til stuðnings við hefðbundið tungumálanám. Sérstök áhersla var lögð á verkefni fyrir ungmenni í framhaldsskóla og fullorðna.
  • Í öðru lagi: Þátttöku innflytjenda og innlendra á jafningjagrunni, m.a. með því að stuðla að lýðheilsu innflytjenda og virkri þátttöku þeirra í félagasamtökum og félagsstarfi
  • Í þriðja lagi: Verkefnum sem ætlað er að auka skilng og samkennd milli innlendra og innflytjenda á vinnustöðum eða í framhalds- og háskólum, svo sem með félagsvinaverkefnum og menningar- og tungumálabrúarsmíði.

„Verkefnin sem hlutu styrki í ár endurspegla þessi forgangsverkefni fallega. Þau spegla nýsköpun, skuldbindingu og samkennd margra stofnana og einstaklinga á þessu sviði. Hvert verkefni er skref í átt að samheldnara, opnara og réttlátara samfélagi - samfélagi þar sem allir fá tækifæri til að blómstra,“ sagði Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs.

„Það er mér mikil heiður að standa hér í dag þegar við viðurkennum og styðjum verkefni sem styrkja íslenska samfélagið og endurspegla þau gildi sem okkur þykir vænt um: Þátttöku, virðingu, jafnrétti og samkennd,“ sagði hann enn fremur.

Styrkirnir voru veittir á viðburðinum Innflytjendur og samfélagið sem innflytjendaráð stóð fyrir og fór fram fyrir fullu húsi nú í morgun í tilefni af alþjóðlega mannréttindadeginum. 

Það voru Tomasz Chrapek og Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem veittu styrkina. Alls voru veittir styrkir fyrir 70 milljónir króna og hluti eftirfarandi styrk:

 


Nafn verkefnis

Styrkþegi

Upphæð styrks

Íslenska með hreim

Hola félag spænskumælandi á Íslandi

1.000.000

Kveðum saman

Austan mána

1.800.000

Building Trust: Icelandic Midwives and Polish Mothers. Improving Perinatal Care Through Cultural Understanding

Paulina Kołtan-Janowska

780.000

Sögubútar í Árbæ: Bútasaumssmiðja

Christalena Hughmanick

2.000.000

Förum saman í leikhús! / Menjünk együtt színházba!

Ungverska Menningarfélagið á Íslandi

82.000

CIRCLES OF CONNECTION – Building Bridges through Inclusion and Neurodiversity

Rebeca Lombardo Naveros

1.900.000

Inngildingar skrefin

Magnea Marinósdóttir

5.000.000

Lesum saman - í framhaldsskólum, háskólum og samfélaginu

Pappírsbátur

2.000.000

Tengsl og tunga - íslenska í verki

Eirð Náttúruhús

1.300.000

Gefum íslensku séns

Menntaskólinn á Ísafirði

2.700.000

Samvera / Common ground

Borgarbókasafn

1.800.000

Cultivating an Ecology of Belonging at the University of
Iceland

Háskóli Íslands - Sprettur

5.000.000

Immigrant Voices: Language, Belonging and Social Inclusion among East and South European Communities in Iceland

Vigdísarstofnun, alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar

4.000.000

Íslenskuspor - tengsl í gegnum tungumál

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

4.500.000

Tungumál Hjartans (The Language of the heart)

Mental Bytes

1.800.000

Heilbrigði á vinnustað- lýðheilsa og samfélag á
fjölmenningarlegum grunni

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Klausturhólar

2.300.000

Planet Laugarvatn & Social Coffee viðburðir

Planet Laugarvatn

1.000.000

Viltu kaffi? Íslenskur spjallhópur fyrir íbúa með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

Reykjanesbær

2.000.000

Íslenskukennsla og stefnumótun í Mýrdalshreppi - þarfagreining og þróun leiðarvísis

Mímir símenntun

4.800.000

Úkraínskir flóttamenn á Íslandi inngilding

Félag heyrnarlausra

2.600.000

Icelandic Centre for Immigration Research

Háskólinn á Akureyri

5.000.000

Saman í samfélagi - þátttaka á jafningjagrunni

Sveitarfélagið Vogar

5.000.000

Frístundaþátttaka ungmenna á framhaldsskólaaldri af erlendum uppruna

Akureyrarbær

5.000.000

Viltu tala íslensku við mig?

Hugvit & Hönnun

2.500.000

How Do I Say It? – Icelandic in Rural Communities

Þekkingarnet Þingeyinga

2.700.000

Teiknikvöld á Siglufirði

Emma Sanderson

400.000

Refugee Empowerment Curriculum (REC)

OMAHAI

450.000

Fjölmenningarlegt kosningakaffi

Amtsbókasafnið á Akureyri

590.000

Styrkþegar ásamt Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.