10 desember 2025

/

Innviðaráðuneytið

Átaksverkefni um tvítengingu þéttbýlis með ljósleiðara hrundið af stað

{image.Description}
Magnús Hauksson, framkvæmdastjóri Öryggisfjarskipta, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Skagastrandar stilltu sér upp fyrir framan vinnuvélarnar á Skagaströnd. Þær hafa verið notaðar við að leggja ljósleiðara og tryggja tvítengingu fyrir svæðið.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur hrundið af stað átaksverkefni til að tryggja að á annan tug þéttbýlisstaða og byggðakjarna verði tvítengdir, þ.e. fái tvöfalda ljósleiðaratengingu. Öll fjarskipti á þessum stöðum fara nú um einn ljósleiðarastreng. Við rof á slíkum strengjum verða staðirnir sambandslausir sé ekkert varasamband fyrir hendi.

Samkomulag um átaksverkefnið var undirritað á Skagaströnd í dag þar sem verkefnið hófst í haust. Ríkisfyrirtækið Öryggisfjarskipti ehf. mun hafa umsjón með framkvæmdum í samvinnu við sveitarfélög og landeigendur o.fl. Átaksverkefnið er fjármagnað og tilkynnt verður á nýju ári hvar verður farið í úrbætur árið 2026.

„Góð og áfallaþolin fjarskipti eru ein af undirstöðum búsetu og atvinnulífs óháð því hvar fólk á heimili eða sækir atvinnu. Verði bilun á einum stað hættir þjónustan að virka nema að varaleið taki við. Tímabært var að huga að mótvægisaðgerðum við slíkar aðstæður enda brýnt að auka áfallaþol fjarskiptainnviða. Ráðuneytið mun vinna skipulega að þessu á næstu misserum í samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Átaksverkefnið mun nýtast mörgum þéttbýlisstöðum og byggðakjörnum sem aðeins eru tengdir einum ljósleiðarastreng,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Innviðaráðuneytið kallaði nýverið eftir eigin áformum fjarskiptafyrirtækja og annarra aðila um úrbætur. Könnunin náði til eftirfarandi þéttbýlis: Bolungarvíkur, Skagastrandar, Borgarfjarðar eystri, Grenivíkur, Hellissands, Hnífsdals, Hvammstanga, Kópaskers, Patreksfjarðar, Raufarhafnar, Rifs og Suðureyrar. Niðurstaða þeirrar könnunar liggur fyrir og fleiri þéttbýlisstaðir eða byggðakjarnar kunna mögulega að bætast við síðar.

Átaksverkefnið hófst á Skagaströnd

Það var við hæfi að undirrita samkomulagið á Skagaströnd en átaksverkefnið hófst einmitt á vinnu við hringtengingu ljósleiðara á Skaga. Vinnan er komin vel á veg og er þess vænst að henni ljúki fyrir lok ársins. Markmiðið er að auka fjarskiptaöryggi á öllu svæðinu, ekki síst á Skagaströnd, sem hefur mátt þola endurtekið útfall á fjarskiptum á liðnum misserum þegar eini ljósleiðarann sem tengir byggðalagið rofnaði.

Öryggisfjarskipti hefur milligöngu um framkvæmdir á svæðinu í samráði við sveitarfélög, landeigendur og eiganda aðliggjandi ljósleiðarastrengja sem nýr strengur mun tengja saman á um 9 km kafla. Samhliða ljósleiðarastrengnum er einnig lagður raforkujarðstrengur en hvoru tveggja er forsenda lagningar samsvarandi heimtauga þegar þar að kemur.

„Sveitarstjórnarfólk af svæðinu vakti athygli mína á stöðunni í upphafi ársins og við vorum sammála um að ekki væri viðunandi að fara inn í annan vetur með óbreytt ástand. Hringtenging á Skaga og þar með tvítenging Skagastrandar verður fyrsti áfanginn í þessu stóra átaksverkefni að klára að tvítengja allt þéttbýli landsins,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra.

Fyrirséð er að ljósleiðaravæðingu alls þéttbýlis ljúki innan fárra missera og þá nær háhraða farnet til 99,9% heimila og þar af nær 5G til um 97%. „Þessari afbragðs stöðu og fyrirsjáanleika um áframhaldandi uppbyggingu markaðsaðila, með eða án opinbers stuðnings, ber að fagna. Þau fáu lögheimili og fyrirtæki með heilsárs búsetu/-atvinnustarfsemi sem ekki eiga kost á ásættanlegu netsambandi geta leitað aðstoðar Neyðarlínunnar við að útvega slíkt,“ segir ráðherra.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Magnús Hauksson, framkvæmdastjóri Öryggisfjarskipta ehf., og Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Skagastrandar voru viðstödd þegar samkomulag um átaksverkefnið var undirritað.