10 desember 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Stuðningur við auðlesið mál

{image.Description}
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Oddbergur Eiríksson, forstöðumaður Fjölmenntar, undirrita samninginn. Með á myndinni er Snorri Rafn Hallsson hjá Miðstöð um auðesið mál.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt Miðstöð um auðlesið mál styrk að upphæð 15 milljónum króna. Styrkurinn er hluti af Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks en ein af aðgerðunum í henni fjallar um auðlesið efni. Auðlesið mál er íslenska sem hefur verið einfölduð á skipulegan hátt og var miðstöðinni komið á laggirnar árið 2022 með stuðningi ráðuneytisins.

„Það er ánægjulegt að geta stutt áfram við mikilvægt starf Miðstöðvar um auðlesið mál. Aðgengi að upplýsingum er grundvallarréttur allra og í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er sérstaklega kveðið á um að aðildarríki skuli tryggja aðgengi fatlaðs fólks að upplýsingum,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Fyrr á árinu gaf miðstöðin út Handbók um auðlesið mál sem nálgast má endurgjaldslaust á vefnum. Með útgáfu handbókarinnar er öllum þeim sem birta efni opinberlega gert kleift að bjóða upp á auðlesna útgáfu.

Þekking og skilningur á heiminum í kringum okkur er grunnur að því að geta tekið upplýstar ákvarðanir, lifað sjálfstæðu lífi og nýtt þau réttindi og tækifæri sem okkur bjóðast. Til að tryggja að allir hafi raunverulegan aðgang að upplýsingum þarf oft að einfalda framsetningu texta og aðlaga hana að þörfum fjölbreyttra hópa samfélagsins. Ein leið til þess er að nota auðlesið mál.

Með útgáfu handbókarinnar er öllum þeim sem birta efni opinberlega gert kleift að bjóða upp á auðlesna útgáfu.

Hvað er auðlesið mál?

Auðlesið mál er íslenska sem hefur verið einfölduð á skipulegan hátt:

Orðaforði: Einföld orð sem flestir þekkja og skilja.

Setningagerð og málfræði: Stuttar, beinar setningar og einföld málfræðileg uppbygging.

Bakgrunnsþekking: Auðlesið mál gerir ekki sömu kröfu um þekkingu á heiminum og almennir textar.

Framsetning: Textinn er settur fram á skýran hátt með fyrirsögnum og myndrænu efni þegar við á.

Auðlesið mál er ekki einungis einföldun heldur mikilvægt aðgengistæki. Það tryggir að einstaklingar með lestrar- eða lesskilningsörðugleika hafi sama aðgang að upplýsingum og aðrir. Með auðlesnu máli stuðlum við að jöfnum tækifærum og sjálfstæði allra.

Fyrir hverja er auðlesið mál?

Auðlesið mál er fyrir alla sem eiga erfitt með að skilja almenna eða fræðilega texta á íslensku. Í víðum skilningi getur auðlesið mál því verið fyrir okkur öll. Enginn er sérfræðingur í öllu og þegar við förum út fyrir okkar svið gæti auðlesið mál komið okkur að gagni.

Auðlesið mál er þó fyrst og fremst fyrir þau sem vegna fötlunar sinnar eiga varanlega erfitt með að lesa og skilja þá texta sem við þurfum til að lifa sjálfstæðu lífi og njóta réttinda okkar til fulls. Sá hópur getur ekki nýtt sér önnur bjargráð upp á eigin spýtur svo sem texta á öðrum tungumálum, þýðingarforrit, orðabækur og slíkt til þess að fóta sig í veruleikanum. Þess vegna verður auðlesið mál alltaf að taka mið af þeim og þeirra þörfum umfram allt annað.

Eins og áður segir getur auðlesið mál þó gagnast öðrum hópum, svo sem:

    • Óvönum lesendum, eins og börnum sem eru að læra að lesa, eða þeim sem eru að tileinka sér nýja lestrarfærni.

    • Innflytjendum og fólki sem er að læra íslensku sem annað mál. Einfaldir textar með grunnorðaforða auðvelda þeim að skilja og tileinka sér efnið.

    • Þeim sem tímabundið eiga erfitt með lesskilning, t.d. vegna álags eða veikinda.

Handbókin er ætluð öllum þeim sem fást við framsetningu texta í sínu starfi, svo sem kennurum, dagskrár- og textagerðarfólki, ritstjórum, þýðendum og blaðamönnum.

Skýrar leiðbeiningar um hvernig á að skrifa texta á auðlesnu máli

Handbókin inniheldur skýrar og ítarlegar leiðbeiningar um hvernig á að skrifa eða þýða texta á auðlesnu máli, með það að markmiði að hámarka skiljanleika og aðgengi að upplýsingum. Hún er ætluð öllum þeim sem fást við framsetningu texta í sínu starfi, svo sem kennurum, dagskrár- og textagerðarfólki, ritstjórum, þýðendum og blaðamönnum.

Handbókin byggir að stórum hluta á Leichte Sprache – Das Regelbuch sem er handbók þýska rannsóknarsetursins Forschungsstelle Leichte Sprache. Setrið er starfrækt við háskólann í Hildesheim og þar hafa í rúman áratug farið fram vísindalegar rannsóknir á auðlesnu máli, allt frá málfræðilegum og textalegum atriðum til samfélagslegra þátta. Snorri Rafn Hallsson þýddi bókina og staðfærði.

Ráðherra ásamt Oddbergi Eiríkssyni og Snorra Rafni Hallssyni.