10 desember 2025
/
Dómsmálaráðuneytið
Auglýsing um breytingu á áfrýjunarfjárhæð
Samkvæmt 152. gr. laga um meðferð einkamála, 91/1991, er það skilyrði áfrýjunar, þegar mál varðar fjárkröfu, að fjárhæð kröfunnar nemi a.m.k. 1.000.000 króna. Áfrýjunarfjárhæðinni skal breyta um hver áramót miðað við vísitölu neysluverðs frá 1. janúar 2018 og auglýsa í Lögbirtingablaðinu.
Meðfylgjandi auglýsing dómsmálaráðherra um áfrýjunarfjárhæð fyrir árið 2026 birtist í Lögbirtingablaði þann 8. desember 2025:
Auglýsing um breytingu á áfrýjunarfjárhæð
Áfrýjunarfjárhæð samkvæmt 1. mgr. 152. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991, sbr. 17. gr. laga nr. laga nr. 49/2016, er kr. 1.473.007.
Áfrýjunarfjárhæð þessi tekur gildi 1. janúar 2026 og gildir fyrir árið 2026.Dómsmálaráðuneytinu,
8. desember 2025.