11 desember 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Breytir reglugerð um barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar ungmenna

{image.Description}
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Sindri Dan Vignisson og Sigurjón Nói Ríkharðsson við undirritun reglugerðarinnar í dag.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirritaði í dag breytingu á reglugerð sem heimilar Tryggingastofnun að greiða barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar ungmenna á aldrinum 18-20 ára. 


  • Barnalífeyrinn má greiða ef annað foreldri eða báðir eru látnir eða ef foreldrar eru ellilífeyrisþegar eða örorkulífeyrisþegar.


  • Upphæðin er 48.131 kr. á mánuði og er skattfrjáls.


  • Skilyrði er að viðkomandi sé annað hvort í fullu námi (30 framhaldsskólaeiningar eða háskólaeiningar) eða í starfsþjálfun í að minnsta kosti 6 mánuði á ári.


Áður voru reglurnar þannig að ungmenni fengu synjun ef þau áttu meira en 4 m.kr. Arfur frá foreldrum sem var hærri en sú upphæð leiddi þannig til dæmis sjálfkrafa til synjunar. Þetta eignaviðmið hefur nú verið afnumið. 


Tekjuviðmið gildir hins vegar áfram og til að uppfylla skilyrði mega umsækjendur ekki hafa hærri laun en 323.029 kr. á mánuði fyrir skatt, samhliða náminu.


Breytingin sem ráðherra gerði í dag gildir afturvirkt frá og með 1. ágúst sl.


 

Inga Sæland bauð Agli Gylfa Ríkharðssyni, Sigurjóni Nóa Ríkharðssyni, Sindra Dan Vignissyni og Snævari Dan Vignissyni, að vera með sér þegar hún undirritaði reglugerðina í dag. Sindri og Snævar eru bræður og Sigurjón og Egill sömuleiðis. Fyrir um 10 árum upplifðu þeir allir föðurmissi og hafa barist fyrir því að reglugerðinni verði breytt og eignaviðmiðið afnumið. 

Heitt súkkulaði á borðinu og reglugerðin undirrituð.

Með bræðrunum voru einnig mæður drengjanna þær Silja Úlfarsdóttir og Iðunn Dögg Gylfadóttir.