11 desember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Neðansjávarfar til að efla eftirlit við strendur Íslands afhent Landhelgisgæslunni

{image.Description}
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Stefán Reynisson, framkvæmdastjóri Teledyne Gavia, ásamt fulltrúum frá varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslunni við afhendinguna í dag.

Landhelgisgæsla Íslands tók formlega á móti ómannaða neðansjávarfarinu GAVIA AUV frá Teledyne Gavia í dag. Um samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands og utanríkisráðuneytisins er að ræða en Háskóli Íslands færði Landhelgisgæslunni farið til eignar fyrr á árinu. 

Á undanförnum vikum hafa farið fram uppfærslur og viðbætur á neðansjávarfarinu sen utanríkisráðuneytið fjármagnaði, til að tryggja sem besta virkni þess.

„Hér er um að ræða enn eina víðbótina við varnir Íslands, sem kemur meðal annars til með að efla verulega eftirlit með þeim mikilvægu neðansjávarinnviðum sem liggja í hafinu umhverfis landið okkar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Neðansjávarfarið kemur til með að nýtast Landhelgisgæslunni við hin ýmsu verkefni leitar og könnunar sem og við varnartengd verkefni í samstarfi við Atlantshafsbandalagið.“

Prófanir fóru fram á neðansjávarfarinu síðast liðið sumar þar sem lagnaleiðir tveggja nýrra rafstrengja til Vestmannaeyja voru m.a. kannaðar með búnaði farsins sem og lagnaleið rafstrengs yfir Arnarfjörð.

Neðansjávarfarið er útbúið hliðarsónar (e. Side Scan Sonar) sem getur kortlagt hafsbotninn og hluti sem þar eru með mikilli nákvæmni.  Farið verður gert út frá varðskipum Landhelgisgæslunnar og sjómælingaskipinu Baldri.

Teledyne Gavia er íslenskt fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í framleiðslu slíks búnaðar um árabil og er í fremstu röð fyrirtækja á sínu sviði.