16 desember 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Styrkjum úthlutað til einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Markmið með styrkveitingunum er að efla starfsemi staðbundinna fjölmiðla á landsbyggðinni en þeir gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðja með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf.
Auglýst var eftir umsóknum um styrki til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins þann 20. nóvember sl. með umsóknarfresti til miðnættis 7. desember. Alls bárust 9 umsóknir fyrir tilgreindan umsóknarfrest. Til úthlutunar voru 15 m. kr., 12,5 m. kr. frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og 2,5 m. kr. frá innviðaráðuneyti. Allar gildar umsóknir uppfylltu skilyrði reglna nr. 1189/2025 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla og hljóta eftirfarandi fjölmiðlaveitur styrk, hver að upphæð 1.666.667 m. kr.
- Akureyri.net, útgefandi Eigin herra ehf.
- Austurglugginn og Austurfrett.is, útgefandi Útgáfufélag Austurlands ehf.
- Bæjarblaðið Jökull, útgefandi Steinprent ehf.
- Eyjafréttir og Eyjafrettir.is, útgefandi Eyjasýn ehf.
- Tígull og Tigull.is, útgefandi Leturstofan Vestmannaeyjum ehf.
- Skessuhorn og Skessuhorn.is, útgefandi Skessuhorn ehf.
- Sunnlenska.is, útgefandi Tvær stjörnur ehf.
- Vikublaðið og Vikubladid.is, útgefandi Útgáfufélagið ehf.
- Víkurfréttir og Vf.is, útgefandi Víkurfréttir ehf.