18 desember 2025
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Fyrsta starfsár Hvatasjóðs íþróttahreyfingarinnar
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar hefur lokið úthlutun styrkja á sínu fyrsta starfsári. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Mennta- og barnamálaráðuneytið gerði samning við ÍSÍ og UMFÍ í nóvember 2023 um átta nýjar starfsstöðvar til eflingar íþróttastarfs á landsvísu. ÍSÍ og UMFÍ var á grundvelli samningsins falið að koma á Hvatasjóði með það að markmiði að auka útbreiðslu íþrótta og þátttöku barna. Sjóðurinn er fjármagnaður af ráðuneytinu.
Hvatasjóðurinn úthlutaði styrkjum þrisvar á árinu fyrir alls 86.590.000 kr.. Verkefnin eru af fjölbreyttum toga, allt frá að bjóða upp á nýjar íþróttagreinar innan svæða að því að skapa aðstæður innan íþróttafélaga fyrir fatlaða og koma á reglubundnum æfingum auk samstarfsverkefna á milli svæða sem einnig getur eflt íþróttastarfið í heild. Hér má sjá yfirlit yfir úthlutun sjóðsins á árinu 2025:
Hvatasjóður fellur vel að áherslum stjórnvalda á að auka virkni fólks í gegnum íþróttastarf. Sjóðurinn hefur styrkt ýmis verkefni sem farið hafa af stað í anda verkefnisins Allir með sem styrkt er af þremur ráðuneytum og miðar að því að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna. Ráðuneytin tilkynntu nýverið um áframhaldandi stuðning við verkefnið Allir með.