18 desember 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Heimsókn geðheilbrigðisráðherra Írlands – upphaf að samstarfi frændþjóða
Mary Butler, geðheilbrigðisráðherra Írlands kom nýverið í heimsókn til Íslands til að efla samvinnu í geðheilbrigðismálum, deila reynslu og lausnum í þeim áskorunum sem þjóðirnar standa frammi fyrir. Það var heilbrigðisráðherra Ölmu D. Möller sönn ánægja að taka á móti Mary Butler og sendinefnd hennar. Sérfræðingar heilbrigðisráðuneytisins, heilbrigðisþjónustunnar og fulltrúar hagsmunasamtaka kynntu íslenska stefnumótun á sviðinu, þjónustu, áskoranir og tækifæri. Ráðuneytið færir þeim þakkir fyrir þeirra góðu kynningar og gagnlegu umræður.
Geðheilbrigðisþjónusta Írlands er framarlega í heiminum. Þeirra stefna, Sharing the Vision 2020-2030, rímar um margt við okkar stefnu og aðgerðaáætlun þar sem heildræn, batamiðuð nálgun frá geðrækt og forvörnun til sérhæfðar þjónustu er í forgrunni. Bæði ríkin eru með svipuð þjónustuþrep og leggja ríka áherslu á afstofnanavæðingu, þverfagleg geðheilsuteymi í nærumhverfi fólks, og mannréttindamiðaða nálgun með gagnreyndum meðferðarleiðum.
Írland hefur sýnt gott fordæmi varðandi virka þátttöku fólks með eigin reynslu af geðrænum áskorunum, fjölskyldum þeirra og í öllu ferlinu frá stefnumótun til þjónustuveitingar. Þetta er vaxandi áhersla í nálgun íslenskra stjórnvalda á sviði geðheilbrigðismála og liður í opinberri stefnu málaflokksins.
Margar áhugaverðar hugmyndir voru ræddar á fundinum. Meðal annars sagði Butler frá sérstökum krísukaffihúsum sem eru starfrækt víða á Írlandi. Þar getur fólk komið við á kvöldin og um helgar og fengið stuðning jafningja, sjálfboðaliða og fagfólks í geðheilbrigðismálum. „Þetta tel ég vera áhugaverða og góða hugmynd sem gæti nýst okkur á Íslandi. Þarna getur fólk komið ef eitthvað hvílir á því, eða ef það þarfnast félagsskapar í vingjarnlegu og hlýlegu umhverfi“ segir Alma.
Stafræn geðheilbrigðisþjónusta var einnig til umræðu og hvernig lönd geta best þróað stafrænan geðrænan stuðning fyrir fólk á öllum aldri, allt frá stafrænu læsi og eflingu geðheilbrigðis, til snemmtækrar íhlutunar og sérhæfðs stuðnings. Írar vinna nú með Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni að því að þróa vegvísi um stafræna geðheilsu.
Upphaf að góðu samstarfi í geðheilbrigðismálum
Það er samdóma álit ráðherranna tveggja og sérfræðinganna sem tóku þátt í dagskránni að Írar og Íslendingar deili svipaðri sýn um áherslur í geðheilbrigðismálum. Þjóðirnar hafi margt að læra hvor af annarri og að heimsóknin hafi markað upphaf að frekara samstarfi. Strax á nýju ári er fyrirhuguð fjarfundaröð um geðheilbrigðismál þar sem þjóðirnar deila reynslu og þekkingu.