19 desember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Stuðningur við sjálfstæði og hlutleysi Alþjóðlega sakamáladómstólsins undirstrikaður

{image.Description}
Sesselja Sigurðardóttir, skrifstofustjóri laga- og stjórnsýsluskrifstofu, ávarpar aðildarríkjafundinn.

Fyrr í mánuðinum sóttu íslensk stjórnvöld árlegan þingfund aðildarríkja Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag þar sem sérstök áhersla var lögð á hvernig megi hlúa að stöðu dómstólsins gegn þeim ytri ógnum sem hann stendur frammi fyrir. 


Dómstóllinn er eini varanlegi sakamáladómstóll á sviði þjóðaréttar og hefur hann lögsögu þegar alþjóðaglæpir eru framdir á yfirráðasvæðum þeirra 125 ríkja sem að honum standa eða gegn ríkisborgurum hans. Til alþjóðaglæpa teljast verknaðir sem ógna friði, öryggi og velferð í heiminum og vinnur hlutverk dómstólsins að því að sporna gegn refsileysi þeirra sem fremja slíka glæpi.


Frá því dómstóllinn tók til starfa árið 2002 hefur hann unnið að framgangi réttlætisins í þágu hundruði þúsunda þolenda alþjóðaglæpa víðsvegar í heiminum. Dómstóllinn getur þó einungis rækt hlutverk sitt ef aðildarríki hans uppfylla samstarfsskyldu sína gagnvart honum, en hún felur m.a. í sér að handtökuskipunum sé framfylgt.


Undanfarið ár hefur dómstóllinn staðið andspænis stigvaxandi ógnum gegn stofnuninni og embættismönnum hennar í formi netárása, handtökuskipana og þvingunaraðgerða. Íslensk stjórnvöld hafa mótmælt slíkum aðgerðum sem óréttlátri aðför að sjálfstæði og hlutleysi dómstólsins sem grafa undan baráttunni gegn refsileysi. 


Á vettvangi aðildarríkjaþings dómstólsins fyrr í mánuðinum undirstrikuðu fulltrúar Íslands mikilvægi samheldni aðildarríkjanna í því að standa áfram vörð um sjálfstæði og hlutleysi dómstólsins. Niðurstaða fundarins var samþykkt einróma yfirlýsing aðildarríkjanna þar sem áréttaður var staðfastur og óbreyttur stuðningur við og samstaða með dómstólnum og embættismönnum hans, sem og áheit um að tryggja að ytri ógnir standi ekki í vegi fyrir starfi þeirra. 


Ávarp Íslands á fundinum má nálgast hér