23 desember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Ný stefna utanríkisráðuneytisins á sviði borgaraþjónustu

{image.Description}
Fréttamynd

Utanríkisráðuneytið hefur birt nýja stefnu á sviði borgaraþjónustu 2026 – 2030. Uppfært stefnuskjal tekur mið af þeim áskorunum sem borgaraþjónustan hefur staðið fyrir á síðustu árum, ekki síst heimsfaraldri Covid-19 sem og vaxandi hernaðarátök á heimsvísu. Þá er jafnframt horft til tækninýjunga sem hafa komið fram á sjónarsviðið og tækifæra sem þær hafa að geyma fyrir eflingu borgaraþjónustu, til að mynda á sviði gervigreindar.

„Borgaraþjónustan er lykilþáttur utanríkisþjónustunnar og veitir fólkinu okkar aðstoð og vernd erlendis þegar í nauðir rekur. Við tökum þetta mikilvæga hlutverk okkar mjög alvarlega og leggjum áherslu á að bæta þjónustuna þar sem þess er þörf. Það er okkur nefnilega mikið kappsmál að vera til staðar þegar á þarf að halda,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Umfang verkefna borgaraþjónustunnar hefur vaxið samfara þróun íslensks samfélags og nýjum áskorunum í heiminum og er tilefni þess að mótuð er stefna fyrir borgaraþjónustuna sem sætir reglubundinni endurskoðun. Sendiskrifstofur Íslands sem og víðfeðmt net kjörræðismanna víða um heim veita íslenskum ríkisborgurum þjónustu, m.a. við móttöku umsókna um skilríki og framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslna, sem og aðstoð í neyð.

Opnun sendiráðs Íslands í Madrid í byrjun desember helst í hendur við framkvæmd nýrrar borgaraþjónustustefnu og gerir utanríkisþjónustunni betur kleift að þjónusta þá tugi þúsunda Íslendinga sem dvelja ár hvert um lengri og skemmri tíma á Spáni.

Hægt er að nálgast stefnu utanríkisráðuneytisins á sviði borgaraþjónustu 2026 – 2030 hér.