23 desember 2025
/
Forsætisráðuneytið
Ríkisstjórnin styrkir uppbyggingu björgunarmiðstöðva Landsbjargar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu forsætisráðherra að veita Slysavarnarfélaginu Landsbjörg 25 milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu til að styðja við uppbyggingu björgunarmiðstöðva aðildarsveita félagsins.
Slysavarnarfélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Íslandi. Björgunarsveitir hafa um árabil sinn margvíslegum verkefnum á sviði almannavarna og vilja stjórnvöld standa þétt við bakið á því mikilvæga starfi. Á næsta ári er gert ráð fyrir að um 26 björgunarsveitir muni vinna að endurnýjun á húsnæði sínu og mun styrkurinn nýtast í þau verkefni.