02 janúar 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Efnt til samstarfsverkefna í þremur nýjum héruðum í Malaví

{image.Description}
Brunnur í Balaka-héraði sem er leiðin fyrir samfélagið að afla sér neysluvatns. Vatnið er óhreint og veruleg hætta á vatnsbornum sjúkdómum, auk þess sem það er mikil fyrirhöfn að ná í vatn. Verkefni Íslands stuðla meðal annars að bættu aðgengi að heilnæmu vatni með sólardrifnum vatnsveitum.

Ákveðið hefur verið að hefja undirbúning að samstarfsverkefnum í þremur nýjum héruðum í Malaví, þ.e. í Machinga, Balaka og Salima. Viljayfirlýsingar voru undirritaðar nýverið að þessu tilefni og skrifaði ráðherra sveitarstjórnarmála og dreifbýlisþróunar, Dr. Ben Phiri, undir fyrir hönd stjórnvalda í Malaví, auk héraðsstjóra umræddra héraða og forstöðumanni sendiráðs Íslands í Malaví, Davíð Bjarnasyni.

Þróunarsamvinna Íslands og Malaví á sér langa sögu, eða allt aftur til ársins 1989. Miklar breytingar hafa átt sér stað í samstarfinu frá þeim tíma, en Ísland starfar nú að mestu leyti á grundvelli svokallaðrar héraðsnálgunar í landinu. Hún felur í sér að héraðsstjórnir eru framkvæmdaraðilar en sendiráð Íslands og utanríkisráðuneytið sinna eftirlitshlutverki. Þessi nálgun hefur skilað aukinni sjálfbærni verkefna og styrkara staðbundnu eignarhaldi.

Ísland innleiddi umrædda héraðsnálgun fyrst árið 2012 í Malaví þegar samstarf hófst í Mangochi héraði og var síðar útvíkkað til Nkhotakota héraðs árið 2022. Hefur þessi nálgun gefið góða raun og skilað áþreifanlegum árangri fyrir fátækt fólk í Malaví.

Þakkaði Íslandi fyrir gott samstarf

Við val á nýjum samstarfshéruðum var meðal annars horft til þarfa héraðanna, svo sem stöðu fjölþættrar fátæktar og aðgengis að grunnþjónustu. Í fyrirhuguðum verkefnum er ætlunin að bæta grunnþjónustu í afskekktum samfélögum, stuðla að auknu jafnrétti og byggja upp viðnámsþrótt.

„Starf Íslands í Malaví hefur svo sannarlega borið árangur“ sagði Dr. Ben Phiri, ráðherra sveitarstjórnarmála og dreifbýlisþróunar, við undirritun samstarfsyfirlýsinganna og þakkaði Íslandi fyrir auðsýnt traust. Þá brýndi hann fyrir héraðsfulltrúunum að þeir beri ríka ábyrgð hvað varðar vandaða meðferð fjármuna og undirstrikaði að undirskrift yfirlýsinganna jafngilti loforði héraðsstjóra um að skila haldbærum árangri til samfélaganna.

Verkefni Íslands í Malaví ná til þúsunda einstaklinga á hverju ári, en breytingar í verkefnanálgun eru til þess fallnar að auka enn skilvirkni og áhrif af starfi Íslands í landinu. Stefnt er að því að nýju verkefnin komi til framkvæmda í héruðunum á næsta ári, þar sem stuðningur Íslands mun skipta sköpum fyrir 1,6 milljónir íbúa.

Eitt af fátækustu ríkjum heims

Áhersla er lögð á það í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, sem samþykkt var samhljóða á Alþingi í desember 2023, að beina sjónum sérstaklega að fátækum og óstöðugum ríkjum og fellur Malaví í þann flokk. Malaví er eitt af þremur samstarfslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu en hin eru Sierra Leone og Úganda. Er Malaví eitt af fátækustu ríkjum heims og er t.a.m. í 172. sæti af 193 löndum á lífskjaravísitölulista Sameinuðu þjóðanna (e. Human Development Index). Ísland er hins vegar númer 1 á sama lista. 

„Við erum að upplifa mikla umbrotatíma í alþjóðamálum og þörfin hefur sennilega aldrei verið meiri og neyðin víða mikil,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Íslensk stjórnvöld vinna áfram eftir þróunarstefnu Alþingis. Við höfum lengi átt í mjög góðu samstarfi við stjórnvöld í Malaví sem kljást nú við gríðarlegar efnahagslegar áskoranir, fátækt og hungur. Það er því ánægjulegt að geta lagt lóð á vogarskálarnar með þessum hætti, í þeim tilgangi að bæta lífskjör fjölskyldna og ekki síst barna í allra fátækustu byggðum Malaví.“

Þátttaka efnameiri ríkja heims í alþjóðlegri þróunarsamvinnu er fjárfesting í velsæld, öryggi og sjálfbærni sem getur af sér stöðugleika, allri heimsbyggðinni til hagsbóta. Einnig Íslandi og Íslendingum sem eiga allt undir öflugu og þrautseigu alþjóðakerfi, auknum stöðugleika, mannréttindum og sterkara lýðræði á heimsvísu. Vegferð Íslands frá því að vera eitt fátækasta ríki Evrópu sem þáði aðstoð alþjóðasamfélagsins allt fram á áttunda áratuginn, til þess að verða eitt auðugasta lýðræðisríki álfunnar, varpar ljósi á mikilvægi þess háttar stuðnings.