05 janúar 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Sex sækja um embætti héraðsdómara

{image.Description}
Hari

Hinn 5. desember 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Hins vegar setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs dómara stendur. Umsóknarfrestur rann út þann 22. desember síðastliðinn.

Umsækjendur um bæði embættin eru:

  • Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir lögmaður,
  • Marta María Friðriksdóttir aðstoðarmaður dómara við Landsrétt,
  • Sindri M. Stephensen dósent og settur héraðsdómari,
  • Sverrir Sigurjónsson lögmaður.

Umsækjendur eingöngu um skipun í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur eru:

  • Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður.

Umsækjendur eingöngu um setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur eru:

  • Brynjar Níelsson lögfræðingur.

Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar á næstunni.