06 janúar 2026

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Heimsráðstefna Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar

{image.Description}

Sjötta heimsráðstefna Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA) fór fram í Busan í Suður-Kóreu dagana 1.–5. desember sl. Ráðstefnuna sóttu fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, stjórnvalda, lyfjaeftirlits, fjölmiðla og sérfræðingar. Henni lauk með samþykkt nýrra Alþjóðlegra lyfjareglna og meðfylgjandi staðla sem taka gildi 1. janúar 2027. Um fimmtu útgáfu alþjóðlegu lyfjareglnanna er að ræða.

Forseti Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar, Witold Bańka, sagði við lok ráðstefnunnar: „Samþykkt nýrra alþjóðlegra lyfjareglna og staðla er þeim tengjast er ávöxtur áralangrar samvinnu ótalmargra aðila sem að málaflokknum koma um allan heim. Ég vil sérstaklega þakka þeim er komu að því að leggja drög að texta nýrra reglna og reyna að bregðast við öllum þeim athugasemdum sem borist hafa undangengin misseri. Með nýjum reglum er tekið enn frekar mið af mannréttindum, sérstaklega ólögráða einstaklinga, en áður hefur verið. Aukin áhersla er lögð á aðstoðarfólk íþróttamanna og lyfjaeftirlit. Á ákveðnum sviðum eru reglurnar sveigjanlegri en áður, með það að markmiði að vera í senn strangar og sanngjarnar. Alþjóðlegar lyfjareglur þurfa að vera í stöðugri endurskoðun í takt við tímann hverju sinni. Reglurnar eru sanngjarnar, ákveðnar og gerðar til að jafna leikinn fyrir íþróttafólk um allan heim.“

Witold Bańka, forseti Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar

Samhliða ráðstefnunni var „Busan yfirlýsingin” birt þar sem hagaðilar lýsa sameiginlegri ábyrgð og vilja til að

  • auka enn frekar fræðslu og forvarnarstarf, rannsóknir, faglegt lyfjaprófunarstarf og eftirfylgni með brotum á lyfjareglum,
  • auka stuðning við baráttuna gegn lyfjamisnotkun í íþróttum,
  • styrkja samstarf og samvinnu, ásamt því að
  • sameinast áfram um að vinna í sameiningu að því að byggja upp tiltrú á lyfjaeftirlitskerfinu og því að útrýma lyfjamisnotkun í íþróttum með hag allra þátttakenda og heilinda í íþróttum í huga.

Lyfjaeftirlit Íslands mun kynna og birta uppfærðar reglur um málaflokkinn er taka gildi þann 1. janúar 2027.