06 janúar 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Lagafrumvarp í undirbúningi um áframhaldandi ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán

{image.Description}

Unnið er að lagafrumvarpi sem tryggir almenningi áframhaldandi heimild til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán í samanlagt tíu ár. Þetta er í samræmi við áform sem kynnt voru í fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar í október sl.

Í kynningunni kom fram að stefnt væri að því að gera heimildina varanlega og fyrirsjáanlega, en undanfarin ár hefur hún verið framlengd til eins árs í senn.

Gert er ráð fyrir að frumvarp um málið verði lagt fram á Alþingi á næstu mánuðum, að loknu samráðsferli og að heimildin gildi afturvirkt frá upphafi árs 2026.

Heimild til að nýta séreignarsparnað skattfrjálst vegna kaupa eða byggingar á fyrstu íbúð verður óbreytt frá því sem verið hefur. Nánari upplýsingar um þá heimild má finna á vef Skattsins.