06 janúar 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Sameiginleg yfirlýsing utanríkisráðherra Norðurlandanna vegna Grænlands

{image.Description}
Johannes Jansson/norden.org
Fánar Norðurlandanna.

„Við ítrekum sameiginlega að málefni er varða Grænland og Danmörku eru eingöngu í höndum Grænlands og Danmerkur.“ Þannig lýkur sameiginlegri yfirlýsingu sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og starfssystkini hennar á Norðurlöndunum birtu í dag.

Þar segir að ríkin séu sameiginlega staðráðin í að standa áfram vörð um öryggi, stöðugleika og samstarf á norðurslóðum og hafi stigið skref til að auka fælingarmátt og varnarstarfsemi á svæðinu. Þá styðji Norðurlöndin aukna viðveru og árvekni Atlantshafsbandalagsins á svæðinu.

Ríkin hafi jafnframt aukið verulega fjárfestingar sínar í öryggi á norðurslóðum og séu reiðbúin til að gera meira í samráði við Bandaríkin og önnur Atlantshafsbandalagsríki.

„Öryggi á norðurslóðum byggist á virðingu fyrir stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum, þar á meðal friðhelgi landamæra,“ segir í yfirlýsingunni. „Konungsríkið Danmörk, og þar á meðal Grænland, er eitt af stofnríkjum Atlantshafsbandalagsins og hefur sögulega unnið náið með Bandaríkjunum að öryggi á norðurslóðum, þar á meðal á grundvelli varnarsamnings Bandaríkjanna og Danmerkur frá árinu 1951, sem býður jafnframt upp á frekara samstarf á sviði öryggismála.“

Hægt er að lesa sameiginlega yfirlýsingu utanríkisráðherra Norðurlandanna hér.