08 janúar 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra boðar til málþings um aðlögun að loftslagsbreytingum

{image.Description}

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, boðar til málþings um aðlögun að loftslagsbreytingum, en fyrsta aðlögunaráætlun íslenskra stjórnvalda var gefin út í lok síðasta árs. Málþingið fer fram í Norræna húsinu, 13. janúar kl. 14-15:30. 

Fullbókað er í sal og hefur verið lokað fyrir frekari skráningu, en hægt verður að fylgjast með dagskránni í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins. 

Auk umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, verða þau Hildigunnur Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands, Páll Valdimar Kolka Jónsson, verkefnisstjóri umhverfismála hjá Vegagerðinni og Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar hjá HMS með erindi og að þeim loknum fara fram pallborðsumræður.

Loftslagsbreytingar eru þegar farnar að hafa áhrif á íslenskt samfélag og lífríki með beinum og óbeinum hætti, m.a. vegna hlýnandi loftslags, breytinga í úrkomumynstri og aukinna veðuröfga.

Markmið aðlögunaráætlunarinnar er að draga úr loftslagstengdri áhættu til lengri og skemmri tíma, með því að auka seiglu samfélags og vistkerfa. Er í þessari áætlun lögð áhersla á vöktun, viðbrögð og mat á áhrifum loftslagsbreytinga á íslenska náttúru, samfélag og innviði til að ná utan um afleiðingar loftslagsbreytinga.

Áætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum er að finna á CO2.is vef stjórnvalda um loftslagsmál.