11 janúar 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ragnar Þór Ingólfsson nýr félags- og húsnæðismálaráðherra
Ragnar Þór Ingólfsson er nýr félags- og húsnæðismálaráðherra. Hann tók formlega við lyklum að ráðuneytinu í dag frá Ingu Sæland sem verið hefur félags- og húsnæðismálaráðherra frá því í desember 2024.
Ragnar Þór er fæddur í Reykjavík 17. maí 1973. Hann hefur verið þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður fyrir Flokk fólksins frá árinu 2024. Árið 2025 varð hann formaður þingflokksins, formaður fjárlaganefndar og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, auk þess að taka sæti í fleiri nefndum.
Ragnar Þór var formaður VR á árunum 2017-2024 og hafði þá setið í stjórn félagsins frá 2009. Hann sat í stjórn Landssambands verslunarmanna 2017-2024 og var formaður sambandsins frá árinu 2019. Ragnar Þór tók sæti í miðstjórn ASÍ árið 2017 og var varaforseti ASÍ 2020-2024. Hann sat í stjórn Virk starfsendurhæfingar 2017-2023 og hefur setið í stjórn Bjargs íbúðafélags frá árinu 2017. Þar tók hann við varaformennsku árið 2020 og varð formaður árið 2024.
Ragnari til aðstoðar verður Hreiðar Ingi Eðvarðsson sem áður var aðstoðarmaður Ingu Sæland.
Ragnar Þór Ingólfsson tekur við lyklunum að ráðuneytinu frá Ingu Sæland, fráfarandi félags- og húsnæðismálaráðherra.