12 janúar 2026

/

Forsætisráðuneytið

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Flutningur ráðuneytisstjóra

{image.Description}
Ásdís Halla Bragadóttir og Erna Kristín Blöndal

Ásdís Halla Bragadóttir hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu og Erna Kristín Blöndal ráðuneytisstjóri í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

Ásdís Halla var skipuð ráðuneytisstjóri félags- og húsnæðismálaráðuneytisins í janúar 2025 og ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins í apríl 2022. Erna Kristín var skipuð ráðuneytisstjóri mennta- og barnamálaráðuneytisins í júní 2022.

Þær hafa nú báðar verið fluttar til í starfi og breytingarnar þegar tekið gildi.