13 janúar 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Skýr rammi  í byggingarreglugerð um ljósvist og útsýni 

{image.Description}

Ljósvist hefur nú í fyrsta sinn verið skilgreind í byggingarreglugerð, auk þess sem fjallað er ítarlega um kröfur sem henni tengjast og sett fram skýr markmið. Ljósvist er samansafn ýmissa þátta sem snúa að lýsingu, svo sem dagsljósi og raflýsingu, sem saman lýsa sjónskilyrðum og þeirri upplifun sem rýmið veitir. Þetta er í fyrsta sinn sem heildstæð umfjöllun um ljósvist er innleidd í byggingarreglugerð.


Breytingarnar á reglugerðinni voru undirritaðar síðastliðinn föstudag og var þetta síðasta reglugerðin sem Inga Sæland undirritaði sem félags- og húsnæðismálaráðherra.


Helstu nýjungar eru:


  • Gæta skal að því að byggingar og önnur mannvirki hafi eðlileg tengsl við útivistarsvæði á lóð og staðsetning vistarvera taki mið af dagsbirtu og útsýni þannig að góðrar ljósvistar gæti í vistarverum. 


  • Mannvirki verði hönnuð og byggð þannig að tekið sé tillit til þarfa allra aldurshópa vegna ljósvistar og að hún sé í fullu samræmi við þá starfsemi sem fer fram við eða innan mannvirkis.

    Skýrar kröfur eru gerðar varðandi raflýsingu, daglýsingu í vistarverum, útsýni í vistarverum og að komið sé í veg fyrir ljósmengun


Markmiðum og kröfum í reglugerðinni er fylgt eftir með umfangsmiklum tæknileiðbeiningum sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur unnið að í samvinnu við hagaðila síðustu mánuði. Reglugerðin inniheldur þannig rammann en tæknileiðbeiningarnar hina tæknilegu útfærslu – sem eru nýmæli.


Hver er forsagan?


Vorið 2022 kom fram gagnrýni á að skýrari reglur um ljósvist skorti í byggingarreglugerð hér á landi. Sama sumar hélt HMS opinn fund um mikilvægi ljósvistar og í kjölfarið tók til starfa samráðshópur sem í áttu sæti fulltrúar frá Arkitektafélagi Íslands, Grænni byggð, Ljóstæknifélagi Íslands, Samark (Samtökum arkitektastofa), Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum iðnaðarins, Samtökum rafverktaka og Verkfræðingafélagi Íslands.  


Reglugerðarbreytingin er afrakstur af vinnu hópsins.