15 janúar 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
51% aukning í notkun stafrænna umsókna
Umsóknarkerfi Ísland.is er ein mest notaða þjónustan á vefnum en kerfið hefur verið í örri þróun undanfarin ár. Árið 2025 voru sendar 576 þúsund umsóknir í gegnum Ísland.is, sem er 51% stökk frá árinu áður þegar umsóknirnar voru 381 þúsund.
Lykiltölur ársins 2025
- 576.000 umsóknir sendar í gegnum Ísland.is.
- 51% aukning frá árinu 2024 (þegar umsóknir voru 381.000).
- 55.000 eigendaskipti ökutækja (vinsælasta einstaka umsóknin).
- 9.000 umsóknir um framhaldsskólanám vorið 2025.
Væntingar fólks til þess að geta leyst úr sínum málum á vefnum halda áfram að vaxa og eru stofnanir í samstarfi við Stafrænt Ísland á fullri ferð að fjölga þjónustuferlum sem í boði eru á Ísland.is. Á árinu 2025 fjölgaði stafrænum umsóknum um 68 og eru í dag 356 umsóknir í boði frá 154 stofnunum, ráðuneytum og sveitarfélögum.
Vinsælasta umsóknin í fyrra var eigendaskipti ökutækja hjá Samgöngustofu, 55 þúsund slíkar voru afgreiddar í fyrra. Ný umsókn um framhaldsskólanám hífði mjög upp tölurnar vorið 2025 en alls var rúmlega 9000 slíkum skilað í fyrra. Með henni var ferlið við að sækja um framhaldsskóla einfaldað til muna fyrir nemendur, forráðamenn og starfsfólk framhaldsskólanna.