16 janúar 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Ragnhildur Guðmundsdóttir skipuð forstöðumaður NMSÍ

{image.Description}

Logi Einarsson,  menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur skipað Ragnhildi Guðmundsdóttur í embætti forstöðumanns Náttúruminjasafns Íslands (NMSÍ) frá og með 1. febrúar næstkomandi. Forstöðumaður NMSÍ er skipaður til fimm ára samkvæmt  5. gr. laga nr. 35/2007 um Náttúruminjasafn Íslands. 

Þriggja manna ráðningarnefnd var skipuð innan ráðuneytisins sem tók viðtöl við þrjá umsækjendur að afloknu frummati á umsóknargögnum. Eftir að hafa kynnt sér niðurstöður nefndarinnar ákvað ráðherra að taka viðtöl við tvo umsækjendur sem þóttu fullnægja best hæfnisskilyrðum um embættið.

Umsækjendurnir voru boðaðir í viðtöl 8. janúar 2026 þar sem þeir kynntu verkefni sem lagt hafði verið fyrir þá og ræddu við ráðherra um stofnunina og framtíðarsýn hennar.  

Niðurstaða ráðherra var að Ragnhildur Guðmundsdóttir uppfylli best  þær hæfniskröfur sem tilgreindar eru í auglýsingu um embætti forstöðumanns NMSÍ sem birt var 24. október 2025, að undangengnu heildarmati allra hæfnisþátta fyrir embættið. 

Ragnhildur er með B.S.-gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands sem hún lauk árið 2005. Hún er með meistaragráðu í líffræði frá Háskólanum í Tromsö og lauk námi til kennsluréttinda við Háskóla Íslands. Árið 2020 hlaut Ragnhildur doktorsgráðu í líffræði frá Háskóla Íslands. Ragnhildur starfaði við rannsóknir hjá Hafrannsóknarstofnun Íslands og sinnti kennslu við Verzlunarskóla Íslands. Ragnhildur hóf störf hjá Náttúruminjasafninu árið 2021 og hefur frá því í maí 2025 verið settur forstöðumaður safnsins.

Náttúruminjasafn Íslands stendur á tímamótum þar sem nú er unnið að því að safnið fái nýtt og glæsilegt húsnæði við Safnatröð á Seltjarnarnesi og hefji starfsemi með nýrri grunnsýningu í húsinu. Jafnframt vinnur starfshópur að gerð frumathugunar á mögulegri sameiningu safnsins og Náttúrufræðistofnunar. Nýr forstöðumaður mun því leiða safnið í gegnum fyrirséðar breytingar vegna flutnings sem og taka þátt í vinnu starfshóps við gerð frumathugunar.