17 janúar 2026
/
Forsætisráðuneytið
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Breyting á forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra
Samkomulag hefur orðið milli félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, með staðfestingu forsætisráðuneytisins, að Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fari með stjórnarmálefni um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir eldra fólk. Ábyrgðin á stjórnarmálefninu mun þó enn liggja hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
- Málaflokkurinn er enn í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu en Inga Sæland fer fyrir honum.
- Forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands verður ekki breytt því málaflokkurinn flyst ekki milli ráðuneyta.
- Forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra hefur verið breytt og breytingin verið birt í Stjórnartíðindum.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á uppbyggingu hjúkrunarheimila og náðist góður árangur í málaflokknum á síðasta ári. Um átaksverkefni er að ræða og eru þessar breytingar liður í því að fylgja eftir áframhaldandi uppbyggingu á kjörtímabilinu.